Morgunn


Morgunn - 01.12.1975, Side 28

Morgunn - 01.12.1975, Side 28
130 MOHGUNN rétt við eyra manns, stundum koma að neðan eða ofan, ýmist fjarlægt eða nálægt. Það var engu líkara en afturgöngu Ham- lets. Við Allan vorum orðlausir af undrun, furðu lostnir. Þarna lágum við á mottum okkar og reyndum að skrifa nið- ur hjá okkur í myrkrinu og hvísluðumst á. Líkamir okkar voru þungir og hreyfingarlausir, en skilningarvit okkar virtust frjáls í rúminu, og fundu til golunnar utan dyra, nutu stór- fenglegs landslags og skoðuðu ólýsanlega fagra skrautgarða. Og allan tímann vorum við þó að hlusta á söng dóttui'innar og hið dularfulla klapp og stapp með föstum takti frá einhverjum ósýnilegum verum, sem þeyttust kringum okkur. Indíánar þeir, sem neytt höfðu sveppanna, tóku sinn þátt i þessum hávaða; því stundum heyrðust frá þeim lág undrunar- óp, þegar þeir sáu eitthvað fagurt. En alltaf var óp þeirra í sam- ræmi við sönginn og söngvarann, og truflaði því ekki. I þetta fyrsta sinn sofnuðum við um fjögurleytið um morg- uninn. Við Allan vöknuðum klukkan sex og hvildumst og vor- um þá skýrir vel í kollinum, en hins vegar hálflamaðir eftir viðburði næturinnar. Hinir vingjarnlegu gestgjafar okkar færðu okkur hrauð og kaffi. Þá kvöddum við og héldum til Indíánahússins þar sem við dvöldum, en það var i mílufjarlægð eða svo. n Maður er nefndur Andrija Puharich og er læknir að mennt. Um hann hefur hinn frægi rithöfundur og gáfumaður Aldous Huxley haft þessi orð: „Dr. Puharich is oiie of the most bril- liant minds in parapsychology“. Eða: „Dr. Puharich er í hópi allra gáfuðustu manna, sem fást við rannsóknir yfirskilvitlegra fyrirhrigða.“ En orðið parapsychology er saman sett af grísku orðunum para, sem þýðir eiginlega við hliðina á, og psyke, sem þýðir sál. Þetta táknar því þau fræði, er fjalla um það, sem frábrugðið hlýtur að teljast í andlegum hæfileikum manna öllu venjulegu, svo og fjalla þau um margs konar umdeild fyr- irbrigði, eins og t.d. hugsanaflutning, skyggni, fjarhrif, spá-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.