Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 13
Forseti íslands.
Nei á Bessastöðum
Söguleg stund, 2. júní 2004. Forseti íslands tilkynnir
að hann synji staðfestingu á lögum um eignarhald á
fjölmiðlum sem Alþingi hafði samþykkt.
Olafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands, neitaði
að skrifa undir ijöl-
miðlalög ríkisstjórnarinnar
eftir mikla gagnrýni og um-
ræðu um lögin og lagasetn-
inguna í vor. Það er búist við
að þjóðaratkvæðagreiðsla
fari fram í ágúst. Forsetinn
tilkynnti ákvörðun sína á
blaðamannafundi á Bessa-
stöðum 2. júní og sagði við
sama tækifæri að hann
myndi rökstyðja ákvörðun
sína við fyrsta hentuga tæki-
feri.HI
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ, og Sigurður Árni
Sigurðsson, formaður SVÞ og framkvæmdastjóri BÚR hf.,
hlusta á Þorvald Gylfason prófessor í pontu.
Ingvi I. Ingason, framkvæmdastjóri og eigandi Rafha hf. á
Suðurlandsbraut, Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri
SVÞ, spjalla við Brynjólf Bjarnason, forstjóra Símans.
SVÞ fimm ára
Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, hélt upp á fimm ára
afmæli sitt á Grand Hótel nýlega þar sem voru saman
komnir fulltrúar aðildarfyrirtækjanna og ýmsir vel-
unnarar. Opnað var vefrit með stuttu og hnitmiðuðu yfirliti yfir
sögu verslunar á Islandi, sem Lýður Björnsson sagnfræðingur
hafði tekið saman og því dreift til gesta í prentuðu upplagi. Þor-
valdur Gylfason prófessor flutti skemmtilegan fyrirlestur sem
hann kallaði „verslunarfrelsi í nútímanum“ og fór m.a. yfir það
hvernig verslunin hefur þróast og hvað horfir við í dag, t.d.
með inngöngu í EES. 111
Sigurður Árni Jónsson, formaður SVÞ, og Erna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF.
Við hjálpum þér að láta það gerast
Síminn
13