Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 20
VIÐTAL SVANBJORN THORODDSEN
Ætlum að vera í
leiðtogahlutverki
Það hefiir á ýmsu gengið á stuttri ævi Medcare-Flögu en fyrirtækið hefur þó
metnaðarMa stefiiu. Markmiðið er sett á 20% vöxt á ári og helst meira með
kaupum og yfirtökum.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Mynd: Geir Olafsson
Við erum búin að ganga endanlega frá kaupunum
á SleepTech og það stækkar félagið umtalsvert
eða um 45 prósent. Umfang okkar í Bandaríkj-
unum eykst verulega og munu um 70 prósent af
tekjum okkar myndast þar. Uppbygging félagsins og
starfsemi er að breytast. Við höfum verið að selja tæki
og lausnir til svefnmælinga og hugbúnað til að aðstoða
við rekstur á svefnmælingastofum og nú er það að
þróast áfram. Þetta fyrirtæki sem við höfum keypt
annast rekstur á svefnmælingastofum fyrir um 20
sjúkrahús. Með þessari aðgerð erum við því að teygja
okkur meira inn á þjónustuhlutann af markaði okkar.
Við erum betur í stakk búin til að bjóða víðtækar
lausnir fyrir þá sem annast svefnmælingar. Þetta er því
mjög jákvæð þreyting. Með þessari aðgerð erum við
að stilla upp nálgun sem gerir okkur samkeppnis-
hæfari og sterkari á markaðnum en áður,“ segir Svan-
björn Thoroddsen, forstjóri Medcare-Flögu.
Svanbjörn flytur til New Jersey í Bandaríkjunum í
byrjun júlí í framhaldi af kaupum Medcare-Flögu á
SleepTech. Félagið er nú með starfsemi á tveimur
stöðum í Bandaríkjunum þannig að það þarf að sam-
hæfa starfsemina. Svanbjörn verður í Bandaríkjunum
næsta árið til að fylgja þessum breytingum eftir. Hugs-
anlega lengur. Viðskiptavinir Medcare-Flögu eru
læknar, sjúkrahús og starfandi svefnmælingastofur.
Einnig er nokkuð um að lausnir Medcare-Flögu séu
keyptar af lyfjafyrirtækjum í rannsóknavinnu vegna
þess að víða er þess krafist að það sé rannsakað hvaða
áhrif ný lyf hafa á svefn og svefngæði fólks.
Viljum vaxa hrefalt Þegar rætt er við Svanbjörn
kemur fljótlega í ljós að metnaðurinn er mikill. Stefnt er
að því að innri vöxtur verði að minnsta kosti 20 prósent
á ári og stöðugt er leitað að tækifærum til að vaxa enn
hraðar með samruna og yfirtöku á fyrirtækjum. „Það
má segja að tekjugrunnur okkar núna sé 30-35 milljónir
dollara á ársgrundvelli. Við viljum sjá hann vaxa að
minnsta kosti þrefalt næstu þijú til fimm árin, upp í 100
milljónir dollara í tekjur á ársgrundvelli þannig að við
erum með metnaðarfull áform og markmið um vöxt en
þau markmið eru fyrst og fremst á því sviði sem við
störfum á, sve íngre i n i n gam arkað n u m,“ segir hann.
Svið Medcare-Flögu er ungt enda hefur markaður-
inn verið að þróast og myndast á sl. 10-15 árum. Innan
læknisfræðinnar er sviðið ungt og tiltölulega lítið. Svan-
björn segir að stöðugt fleiri geri sér grein fyrir því
hversu víðtæk og alvarleg heilbrigðisvandamál tengist
svefni. „Við höfúm verið að sjá gífurlega mikið gerast,
fyrst og fremst innan læknisfræðinnar þar sem sífellt
fleiri rannsóknir hafa komið íram sem sýna fram á
tengsl svefnvandamála við mörg af alvarlegustu heil-
brigðisvandamálunum eins og hjartasjúkdómum. Æ
fleiri læknar og sérfræðingar telja að gefa þurfi svefn-
inum gaum. En við erum ekki bara að sjá vaxandi
vitund meðal læknastéttarinnar heldur líka meðal
Saga Medcare-Flögu
1994 Flaga stofnuð og byrjar að selja sín fyrstu
tæki. Stofnandinn var Helgi Kristbjarnarson,
læknir og vísindamaður.
1997 ResMed, fyrirtæki á sviði meðferöar á
kæfisvefni, gerist hluthafi í Flögu og fyrirtækin
taka upp samstarf.
2002 Flaga kaupir Medcare.
2003 Medcare-Flaga stofnar eigið sölu- og
þjónustufyrirtæki í Þýskalandi og kaupir skóla í
Bandaríkjunum. Skólinn menntar fólk sem vinnur
á svefnmælingastofum.
2004 Medcare-Flaga tekur yfir SleepTech.
20