Frjáls verslun - 01.05.2004, Page 40
AHRIFAMESTU
KONURNAR í VIÐSKIPTALÍFINU
Textí: Guðrún Helga Sigurðardóttír
Kristíníóhannesdóttir
FORSTJÓRI GaUMS
Kristín hefur verið framkvæmdastj<)ri Fjárfestingafélagsins
Gaums frá haustinu 1999. í starfinu felst umsýsla íýrir
félagið, hlutabréfaviðskipti og svo situr hún í stjórn
margra félaga, t.d. í stjórn Baugs Group og ýmsum félögum
sem tengjast Baugi Group. Hún er til að mynda stjórnarfor-
maður í Fasteignafélaginu Stoðum og Þyrpingu, situr í stjórn
Latabæjar, Kaldbaks, Goldsmiths og svo er hún stjórnarmaður
hjá Samtökum atvinnulífsins. Kristín er lögfræðingur að mennt,
hún vann við lögmennsku hér á landi í nokkur ár áður en hún
flutti til Danmerkur. Hún lauk þar framhaldsnámi 1999.
„Metnaður hefur alltaf verið iýrir hendi hjá mér en hvort
ég hafi hugsað mér að ná langt á starfsferlinum, það veit ég
ekki. En ég hef alltaf haft metnað til að gera vel það sem ég
tek mér fýrir hendur hverju sinni. Lögfræðin opnar margar
dyr og maður þarf ekkert endilega að starfa við lögmennsku.
Eg prófaði það og það var ágætt en ég hef líka haft gagn og
gaman af að starfa hjá Gaumi. Þar var ég komin í viðskipti og
þetta tvennt er mjög ólíkt þó að það skarist á einhverjum
sviðum,“ segir hún.
Kristín er alin upp í viðskiptum enda faðir hennar Jóhannes
Jónsson sem oft er kenndur við Bónus. „Eg hef aldrei hugsað
um völd og það hefur aldrei verið mér neitt markmið að
komast í áhrifastöður en auðvitað leiðir eitt af öðru. Stjórnar-
seta fylgir eignarhlutum í félögum."
Kristín telur metnað, samviskusemi og elju ásamt því að
vera opinn iýrir nýjungum vera lykilinn að velgengni í starfi.
„Maður þarf að vinna starf sitt eftir bestu getu og hafa vilja til
að taka að sér krefjandi verkefni. Það er oft sagt að konur dragi
sig til baka og vilji ekki taka að sér slík verkefni en ég held að
það sé ekki rétt. Þátttaka kvenna í atvinnulífinu endurspeglar á
engan hátt setu þeirra í stjórnum félaga, td. félaga skráðum í
Kauphöll Islands. Þar hallar verulega á konur. Aðeins tvær
konur sitja í stjórnum úrvalsvísitölutýrirtækja í Kauphöllinni.
Spurning er hvort við ættum að taka upp kynjakvóta eins og
t.d. er gert í Noregi. En Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráð-
herra hefur einmitt verið að taka þetta mál upp. Þetta er engan
veginn ásættanleg staða hver svo sem ástæðan er.“
Rannveig Rist
FORSTJÓRI ALCAN Á ÍSLANDI
Mig langaði alltaf í æsku að verða skipstjóri og vera úti
á sjó, mér fannst það alltaf spennandi og heillandi að
stjórna stóru skipi. Það má segja að ég sé komin í
brúna á stóru skipi, þó verksmiðjan sé hér í Straumsvík þá
erum við hér í ólgusjó áliðnaðarins. Eg hafði þá sýn að vera
við stjórnvölinn á stóru „apparati" en hafði frekar ímyndað
40