Frjáls verslun - 01.05.2004, Page 42
KONUR I VIÐSKIPTALIFIIMU
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Islandi. „Ég hef gott auga fyrir því hverjir eru farsælir sem framtíðarsamstarfsmenn og hverjir
ekki." Mynd: Geir Ólafsson
mér að það yrði á sjó, í sjávarútvegi eða í tengslum við sjóinn.
Eg hafði alltaf það mikinn áhuga á sjónum áður en ég kom
hingað til starfa. Mér hefði aldrei dottið í hug að sækja um
hér, í iðnfyrirtæki, mér var boðið starf hér og svo þróuðust
málin þannig að mér var boðið forstjórastarfið," segir Rann-
veig Rist, forstjóri Alcan á íslandi.
Rannveig hefur próf í vélaverkfræði frá Háskóla íslands,
flórða stigs vélstjórapróf og sveinspróf í vélvirkjun. Hún fór í
MBA-nám í San Francisco. Hún vann m.a. sem vélstjóri, í
frystihúsum og til sjós. Hún hefur kennt í Tækniskólanum og
Háskóla Islands. Hún hóf störf sem yfirmaður öryggismála
og rannsóknarstofu jafnframt því að vera talsmaður ISAL frá
árinu 1990. Hún var steypuskálastjóri, kerskálastjóri í
Straumsvík og varð svo forstjóri í ársbyijun 1997. Rannveig
hefur einnig verið í stjórn ýmissa fyrirtækja. Hún er nú
stjórnarformaður Símans.
„Mikilvægast er að hafa faglegan áhuga og ánægju af því
sem maður er að gera og þá kemur árangurinn af sjálfu sér. Eg
hef brennandi áhuga á því sem ég er að gera, mér finnst það svo
skemmtilegt að ég verð að gæta mín á því. Það er í eðli mínu að
vera „workaholic" en mig langar í raun ekki til að bjóða fjöl-
skyldu minni upp á þannig líf og því þarf ég að beita mig aga.
Mér finnst líka skipta máli að vera fylgin sinni eigin sannfær-
ingu og kunna að vinna með öðru fólki. Ég segi stundum að það
eina sem mér finnst ég verulega góð í sé að velja fólk og fá það
til að vinna með mér. Ég hef gott auga fyrir því hveijir eru far-
sælir sem framtíðarsamstarfsmenn og hveijir ekki. Ég hef líka
gaman af að glíma við þessa pælingu," segir hún.
42