Frjáls verslun - 01.05.2004, Síða 48
Svava Johansen, kaupmaður í Sautján. „Við erum ánægð að reka verslanir einungis á íslandi, höfum ákveðið fyrir löngu að
vera einungis hér og fara ekki út fyrir landsteinana." Mynd: Geir Ólafsson
SVAVA JOHANSEN
KAUPMAÐUR í SAUTJÁN
Mér fmnst gaman að vinna með fólki, jafnt mönnum
sem konum. Konur eru oft nákvæmari að mínu mati
en karlmenn hafa stundum betri heildaryfirsýn. í
stjórnunarstöðum á viðskiptasviðinu er meirihlutinn enn karl-
menn en það hefur nú verið að jafnast eitthvað og ég held að
við konur getum bara verið ánægðar með það.
Við konur erum nákvæmari og framkvæmum alla hluti að
vel hugsuðu máli sem er gott, en við þyrftum að temja okkur
að framkvæma hlutina hraðar. Til þess þarf að vera með góða
heildaryfirsýn og þar finnst mér karlmönnum hafa tekist betur
tfl. Þeir eru með góða heildaryfirsýn og framkvæma hratt,“
segir Svava Johansen, eigandi Saulján.
„Heppileg stýring fyrirtækja er að hafa bæði kynin innan-
dyra í æðstu stöðum fyrir nú utan hvað það er miklu skemmti-
legra! Eg er þó alltaf þeirrar skoðunar að í forgang eigi að
velja hæfasta einstaklinginn, ég vil ekki að kona sé tekin fram
yfir karlmann bara af því að hlutföllin eru röng,“ segir hún.
Svava á mikil viðskipti við Frakka, Breta og Dani og segir
að það sé heilmikill munur að versla við þessi lönd. í öllum
þessum löndum séu þó karlmenn ráðandi í stjórnunar-
stöðum, kannski mest í Frakklandi. „En viðmót þeirra er
mjög ólíkt. Bretar eru oft miklir sveitamenn í sér þótt þeir séu
leiðandi í tísku, Frakkar eru skemmtilega hávaðasamir en
óskipulagðir og svo finnst mér Danir vera yfirburða kaup-
menn. Þeir eru skipulagðir og klárir í viðskiptum upp til hópa
og gaman að vinna með þeim,“ segir hún.
Svava kveðst vera sátt við hlut Sautján á fatamarkaðinum.
„Við erum ánægð að reka verslanir einungis á Islandi, höfum
ákveðið fyrir löngu að vera einungis hér og fara ekki út fyrir
landsteinana. Eg er mjög ánægð með þá ákvörðun, því nóg
ferðast ég nú þegar en á Islandi finnst mér best að vera og hér
vil ég vera með búsetu.“B3
48