Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2004, Page 59

Frjáls verslun - 01.05.2004, Page 59
KONUR í VIÐSKIPTALÍFIIMU „Stjórnaðu yfirmanni þínum“ Stundum er gert grín aö , Ja, raöherra“ stjórnuninni þar sem „ráðuneytisstjórinn tekur í raun ákvarðanir fyrir ráðherrann“. En hvernig er þetta innan stórfyrir- tækja þar sem framkvæmdastjórar þurfa að undirbúa forstjórann fyrir ákvarðanatökur og veita honum nauðsynlegar uppfysingar? Texti: Vigdís tjórnun í fyrirtækjum er að jafnaði ofan frá og niður og því virðist mörgum hugtakið „Stjórnaðu yfirmanni þínum rétt“ hljóma einkennilega. Það er þó ekki eins undariegt og það virðist vera því stjórnun eða stýring þarf ekki að felast í beinum fyrirskipunum eða verkbeiðnum heldur getur allt eins átt við „aðferðina sem notuð er til að vinna með“ viðkomandi yfirmanni. Samkvæmt nýlegri grein í hinu virta blaði Harvard Business Review, „Managing your Boss“, er hlutverk fram- kvæmdastjóra ekki síst það að undirbúa forstjórann fyrir ákvarðanatökur og veita honum nauðsynlegar upplýsingar. Slíkt getur verið erfitt ef stjórnunarhættir forstjóra og fram- kvæmdastjóranna passa ekki saman. Stefánsdóttir var ljóst að um misskilning var að ræða. Upplýsingarnar náðu ekki í gegn því þeir unnu ekki á sama hátt og skildu upplýs- ingarnar hvor á sinn hátt. Gott samstarf Þegar framkvæmdastjórar og forstjóri vinna eftir sömu leikreglum er líklegt að samstarfið gangi vel. SJÓNARHÓLL FRAMKVÆMDASTJÓRANNA Þekkja þeir markmið forstjórans vel? Vita þeir sjálfir hvað þarf helst að gera? Hveijir eru veikleikar forstjórans varðandi stjórnun? Hveijir eru styrkeikar forstjórans? Hvernig er vinnustíll forstjórans? Að Skilja yfirmanninn Til þess að samskiptin gangi auðveldlega og lipurt fyrir sig og forstjóri geti tekið ákvarð- anir byggðar á réttum upplýsingum, þurfa framkvæmda- stjórarnir eða millistjórnendurnir, að skilja hvernig viðkomandi forstjóri vinnur og hveijir veikleikar og styrkleikar hans eru. Vill forstjórinn fá upplýsingar í formi minnismiða? Vill forstjórinn halda form- lega fundi þar sem gefnar eru ítarlegar skýrslur? Vill forstjórinn halda stutta síma- fundi og afgreiða málin þannig? Þrífst for- stjórinn vel í öguðu umhverfi eða vill hann frekar hafa spennu og hraða þar sem eitthvað kemur sífellt á óvart? Án þessara upplýsinga eru framkvæmda- stjórar illa settir og eiga erfitt með að vinna vinnu sína. Það dugir ekki að þeir viti hvernig forstjórinn vill vinna, hann verður að vera tilbúinn að koma til móts við þá og vinna á sama hátt. Til eru dæmi um fyrirtæki sem tapa stórfé eingöngu vegna þess að skilaboð komust ekki rétta leið á milli forstjórans og framkvæmdastjóranna. Forstjóri hafði markmið og taldi sig hafa komið þeim á framfæri við framkvæmdastjórana. Þeir töldu sig vinna í takt við markmið forstjórans, en þegar á leið kom í ljós að hann framfylgdi aðeins hluta þeirra markmiða og þegar kafað var ofan í málið Á sama hátt þurfa framkvæmdastjórarnir að gera sér grein fyrir eigin sfyrk og veikleikum, persónuleika og hvernig for- stjóranum líður hugsanlega varðandi samstarf við þá. Hvort þeir vinna vel með forstjóra sem vill hafa alla þræði í hendi sér eða hvort þeim gengur betur að vinna með forstjóra sem lætur hlutina að mestu í hendur þeirra og treystir þeim til að sjá um verkið. Bestu mögulegu samskipti verða þegar samræmi er á milli vinnulags for- stjórans og framkvæmdastjóranna og samskiptin byggja á sameiginlegum væntingum. Framkvæmdastjórar þurfa að finna leið til þess að koma upplýs- ingum á réttan máta til forstjórans, hvort sem það er munnlega, í löngum skýrslum eða á stuttum minnismiðum. Samstarfið þarf að byggja á heiðarleika og því að forstjórinn og framkvæmda- stjórarnir séu háðir hvorir öðrum varð- andi bestu útkomu á hagnaði og rekstri fyrirtækisins. Tími forstjóra er dýrmætur og oftast knappur og því skiptir miklu máli að framkvæmdastjórar eða næstráðendur sjái til þess að allar upplýsingar séu fyrirliggjandi í aðgengilegu formi. 55 Lauslega endursagt úr greininni „Managing your Boss“ t tímaritinu Harvard Business Review. Stjórnendur fyrirtækja þurfa upplýs- ingar til að geta stjórnað og það er undirmanna þeirra að koma upplýs- ingunum á framfæri á þann veg að þær gagnist yfirmönnum. 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.