Frjáls verslun - 01.05.2004, Síða 63
KONUR I VIÐSKIPTALIFIIMU
ÍSLENSKAR ATHAFNAKONUR ERLENDIS:
Linda Bennett er íslensk
/
Islendingar eiga þekktar athafnakonur erlendis. Margir kannast við Wathne-systur í Bandaríkjunum,
Sigrúnu Halldórsdóttur, bókaútgefanda í Kaupmannahöfn, Berglindi Ásgeirsdóttur, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra hjá OECD, Margréti Ragnarsdóttur hjá MMC í London og áfram mætti telja. Fæstir vita
hins vegar að einhver þekktasta skóbúðin í London og þótt víðar væri leitað, LK Bennett, er í eigu
hálfíslenskrar athafnakonu, Lindu Kristinar.
Textí: Sigrún Davíðsdóttír
Linda Kristín er um fertugt, gift og á þriggja ára dóttur, svo
það er fleira í lífi hennar en skór frá morgni til kvölds.
LK Bennett er einhver þekktasta skóbúðin í London og þó
víðar væri leitað, en fæstir hérlendis vita að LK stendur
fyrir Linda Kristín. Móðir Lindu Kristínar er Hafdís
Bennett myndhöggvari, sem hefur búið í Englandi síðan 1960
og er gift enskum umsvifamanni, Peter Bennett. Hafdís vann
hjá Flugfélagi íslands á sínum tíma og kom til London til að
vinna á söluskrifstofúnni hér. Peter og Hafdís kynntust þegar
hún leigði herbergi í næsta húsi við fjölskyldu Peters. Hann sá
hana í garðinum og var ekki lengi að átta sig á að þarna væri
konan hans komin.
Faðir Peters var töskuframleiðandi og Peter tók síðan við
fyrirtækinu. Linda vann fyrst með föður sínum, opnaði meðal
annars búð á hans vegum í Hampstead, sem hún keypti síðar
af honum. Peter á nú tvær búðir. Linda Kristín er elst systkina
sinna, á bróður sem býr á Nýja-Sjálandi en yngsta systirin,
Tania, vinnur með systur sinni.
Þegar Linda Kristín var útnefnd viðskiptakona ársins fyrr í
vor af kampavínsfyrirtækinu Veuve Cliquot var það rækileg
viðurkenning á skapandi skógleði hennar og að viðskiptavit
hefði blómstrað ærlega síðan hún opnaði fyrstu búðina 1990 í
Wimbledon í Suður-London. Hún byijaði að sögn með 14
þúsund punda lán og 13 þúsund pund af eigin fé.
Nú á hún 45 LK Bennett búðir
í Bretlandi, annars staðar í
Evrópu, Austurlöndum og
Bandaríkjunum. Meira að segja
Parísardömur, sem kalla ekki
hvað sem er smart, hafa fallið
fyrir skónum hennar Lindu
Kristínar eftir að hún gerðist svo
djörf að opna þar fyrshi búðina
sína fyrir 5 árum í stælgötunni
Rue de Grenelle á vinstribakkanum. Alls starfa um 400 manns
hjá fyrirtækinu, veltan er um 14 milljónir punda á ári og yfir
100 þúsund pör fara út úr búðunum á ári.
Iinda Kristín lærði skóhönnun og er ákafur skóunnandi, á
að sögn 200 pör sjálf og hannar LK Bennett skóna sjálf ásamt
litlum hópi. Eins og skóglaðir viðskiptavinir hennar vita þá
sameina skórnir það að vera einkar smart en alls ekki eins
dýrir og þeir líta út fyrir að vera. Skóguðir eins og Jimmy Choo
og Manolo Blahnik ómaka sig ekki við að selja skó fyrir minna
en 300 pund, en skórnir hennar Lindu Kristínar kosta flestir
um 100 pund. Þess vegna eru viðskiptavinir hennar bæði
skóelskandi stórstjörnur og skrifstofústelpur.
Meðan flestir skóíiramleiðendur láta framleiða skóna á
láglaunasvæðum i Austuriöndum heldur Linda Kristín sig við
framleiðendur á Italíu og Spáni, þar sem skógerðin á sér ríka
hefð. Og hún hefur að sögn engan áhuga á að fleyta fyrir-
tækinu á markað, því þar með missi hún yfirstjórnina. Linda
Kristín er um fertugt, gift og á þriggja ára dóttur, svo það er
fleira í lífi hennar en skór frá morgni til kvölds. ffií
Þegar Iinda Kristín
var útnefnd viðskipta-
kona ársins fyrr í vor
af kampavínsfyrirtaek-
inu Veuve Cliquot var
það rækileg viður-
kenning á viðskipta-
viti hennar.
63