Frjáls verslun - 01.05.2004, Qupperneq 84
?
w r
KONUR I UIÐSKIPTALIFIIMU Umsjón: Guðrún Helga Sigurðardóttir og Vigdís Stefánsdóttir
Ragnheiður Halldórsdóttir, gæðastjóri hjá Marel, hefur
gaman af útivist.
Með skíðabakteríu
Skíðabakteríuna þekkja margir og ein þeirra er Ragn-
heiður Halldórsdóttir, gæðastjóri hjá Marel. „Eg hef
verið með skíðabakteríuna í um það bil 18 ár og á þessu
tímabili hef ég farið svo til árlega til útlanda á skíði,“ segir
Ragnheiður. „Svo er ég undir hópþrýstingi að hlaupa en í
vinnunni hjá mér er bráðskemmtilegur hlaupaklúbbur sem
ég var dregin í á sínum tíma. Eg hleyp tvisvar í viku og
stundum um helgar að auki og svo tökum við þátt í ýmsum
skemmtilegum hlaupum. Eg hef meira að segja hlaupið í
grímubúningi í gamlárshlaupi IR og haft gaman af.“
Ragnheiður lætur ekki þar við sitja því hún er líka í golf-
klúbbi. „Það er nú nýtilkomið og eiginlega stórhættulegt því
þarna er önnur baktería sem erfitt er að losna við. Eg byijaði að
spila í lýrra en árangurinn er nú ekki alveg farinn að skila sér -
enda er golf íþrótt sem krefst þess að maður sé bæði þolin-
móður og skapgóður! Þolinmæðina þarf til þess að æfa sig og
góða skapið til þess að golffélagarnir komi heilir heim eftir að
hafa spilað með manni! Þar sem ég tel mig hafa hvort tveggja
þá held ég að mér hafi nú tekist að vera nokkuð prúð á velli.“ S3
Skíði, sumar-
bústaður og
gönguferðir
Vilborg Lofts, starfsmannastjóri íslandsbanka, á skíðum
ásamt manni sínum, Ásgeiri Ásgeirssyni, og dóttur, Höllu
Björk. Mynd úr einkasafni
Fæstir hafa bara eitt áhugamál og Vilborg Lofts, starfs-
mannastjóri íslandsbanka, er þar engin undantekning.
„Ég hef haft áhuga á skíðum í mörg ár en hér sunnan-
lands hefur ekki verið auðvelt að finna þeim áhuga farveg
undanfarið,“ segir Vilborg. „Við ijölskyldan förum til útlanda
á skíði um það bil annað hvert ár. Þetta eru hreint frábærar
ferðir og fií. Annars hef ég líka gaman af því að spila golf en
ég tek það ekki ennþá mjög alvarlega. Ég spila helst bara í
góðu veðri, enda árangurinn eftir þvl.“
Gönguferðir segir Vilborg vera ofarlega á áhugamála-
listanum og hún hefur gengið víða innanlands og einnig
erlendis. „M.a. í Pyreneafjöllum, sem var mjög ánægjuleg
vikugönguferð. Þessi ferð opnaði þó augu mín enn betur fyrir
því hve Island er frábært land til gönguferða með öllum
sínum litbrigðum, breytilega landslagi og veðurfari. Við
erum búin að skipuleggja gönguferð í Lónsöræfi í sumar og
ég hlakka mikið til þeirrar ferðar.“
Vilborg notar veturinn meðal annars til lestrar og er í
lestrarklúbbi með 4 hressum konum sem hafa hist mánaðar-
lega í um 15 ár. „Við gerum okkur far um að lesa bækur frá
hinum ýmsu menningarheimum og ræðum um þær okkar á
rnilli," segir hún. „En ég vil ekki gleyma þvi sem mér finnst
skemmtilegast, það er að vera í sumarbústaðnum með fjöl-
skyldunni. Þar hvílum við okkur, hlöðum batteríin og njótum
samverunnar með börnunum og spilum golf.“ SH
84