Frjáls verslun - 01.05.2004, Qupperneq 98
$
KONUR I VIÐSKIPTALIFINU
Síminn:
Vil öguð vinnubrögð
Eg legg áherslu á sjálfstæði, heilindi og hrein-
skiptni, að menn geti haft skoðanaskipti hvort
sem það er óþægilegt eða skemmtilegt málefni.
Eg vil að völd og ábyrgð fari saman, að menn taki sína
ábyrgð. Það skiptir líka miklu máli að það sé í lagi
gera mistök ef við lærum af þeim og gerum þau ekki
tvisvar, heldur sé það talinn hluti af þroskaferli í starfi
að misstíga sig. Heimurinn ferst ekki þó maður geri mistök
og stundum verða bestu hugmyndir til við slíkt. Eg legg líka
mikið upp úr skipulagningu og öguðum vinnubrögðum. Mér
finnst rétt að allir fái að vera þeir sjálfir, að menn séu glað-
lyndir og að þeim finnist lífið skemmtilegt. Það er mikilvægt
að mála ekki svörtu myndina heldur sjá þá hvítu og hafa
gaman af lffinu. Ég held að þetta lýsi einna helst
stjórnunarstíl mínum,“ segir Katrín Olga
Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri mark-
aðssviðs hjá Símanum.
Innleiðingin er áskorun Katrín Olga
er búin að starfa hjá Símanum frá því
í janúar 2003. Markaðssviðið er
stærsta sviðið hjá Símanum með
450 af þeim 1.260 starfsmönnum
sem starfa hjá félaginu. Sviðið er
skilgreint þannig að undir það
heyri allar þær einingar sem hafa
snertifleti við viðskiptavini fyrir-
tækisins. Markaðssviðinu er skipt
í þrjú undirsvið. Einstaklingssvið er
þeirra stærst, með 375 manns.
Undir það heyra m.a. verslanir og
þjónustumiðstöðvar, þjónustuverið,
118 og nokkrar flölmennustu deildirnar
Undir það heyra líka þjónustuver
iyrir CCP-leikinn sem
er á Netinu, símaskráin
og ritsíminn. Annað
svið er iyrirtækjamark-
aðurinn. Undir það
heyra stærstu við-
skiptavinirnir sem allir
hafa sinn eigin við-
skiptastjóra auk þess
sem sölustýringarein-
ing og þjónustueining
Símans tilheyra þessu
sviði. Þriðja einingin er
svo markaðsmálin.
Katrin Olga Jóhannes-
dóttír hefur verið
framkvæmdastjóri
hjá Símanum í
rúmlegcmttár.
Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá
Símanum. „Einhver sagði að með því að brenna orku fengi maður
orku. Ég hef mikla trú á því," segir hún.
Mynd: Ari Magg
Katrín Olga heldur síðan utan um
þessar þrjár einingar markaðssviðs.
Síminn hefur öfluga ijölskyldustefnu
auk þess sem starfsmenn fyrirtækisins
geta notað þá fínu tækni sem er fyrir
hendi til fjarvinnu. „Það hefur gengið
mjög vel enda er ekki hægt að vera allan
sólarhringinn í vinnunni. Þetta er umfangsmikið starf, það er
alveg ljóst. Þetta hefur verið spennandi því að það er margt
búið að gerast. Síðasta ár var mjög annasamt og nú stendur
fýrir dyrum innleiðing á þeirri mörkunarvinnu sem unnin var
á síðasta ári hjá Símanum. Það er oft mesta áskorunin að inn-
leiða hlutina. Þetta hefúr verið yfirgripsmikið starf en hópurinn
er góður, bæði stjórnendahópurinn og aðrir starfsmenn
í íýrirtækinu þannig að þetta gengur mjög vel.“
Hvaða áhugamál hefurþú?
„Eftir að ég fékk litlu dóttur mína snýst
lffið ansi mikið um hana en hún kom
til okkar síðasta haust. Svo les ég
mikið bækur og finnst vera hvíld í
því. Ég hef gaman af útiveru,
skíðum og gönguferðum ef ég hef
getað gefið sjálfri mér kost á því. Ég
hef gaman af allri hreyfingu, hvort
sem það er sund á morgnana eða
jóga, en golfið hefur ekki komist inn
í myndina hjá mér. Ég hef farið í sund
á morgnana í tvö ár, hef verið mætt á
hurðarhúninn í Sundlaug Kópavogs kl.
hálfsjö. Eftir að stelpan kom hef ég farið
þrisvar í viku, en áður fórum við á
hveijum morgni. Mér finnst það
skipta mjög miklu máli.
Mér þykir gott að synda
á morgnana, það hentar
mér betur því að mér
finnst erfitt að hlaupa út
í stressi seinni partinn.
Og ef maður sleppir
sundinu hefur maður
samviskubit yfir að
sinna ekki þessum
þætti. Einhver sagði að
með því að brenna orku
fengi maður orku. Ég
hef mikla trú á því,“
segirhún.ffij
98