Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 124
Erla Vilhjálmsdóttir, annar eigenda Tékk-Kristals.
Tékk-Kristall:
Konur uilja fullkomnun
Það eru hjónin Erla Vilhjálmsdóttír og Skúli
Jóhannesson sem reka verslunina Tékk-
Kristal og hafa gert frá upphafi. Verslunin var
upphaflega sérverslun með kristal frá Tékkó-
slóvakíu eins og nafnið ber vitni um, en nú selur hún
vörur fyrir öll herbergi hússins, frá ótal löndum.
„Við vorum á Skólavörðustíg 16 í upphafi og fluttum okkur
þaðan á Laugaveg 15 og í dag erum við með tvær verslanir, í
Kringlunni og Faxafeni," segir Erla. „Það hefur alla tíð verið
markmið okkar að bjóða góðar og vandaðar vörur á góðu verði
og ég tel að það hafi tekist. Okkar mesta ánægja er að fá við-
skiptavini sem finna það sem þeir leita að og fara ánægðir út.“
Litla yalleríið Erla segir Tékk-Kristal selja sífellt meira
af íslenskum vörum. „Við köllum búðina stundum
litla galleríið því það er orðið svo mikið af
íslenskri leirlist, glerlist og myndlist í henni.
Þessir listmunir hafa verið vinsælir hjá
viðskiptavinum okkar en við erum einnig
með innflutta listmuni á frábæru verði. Við
höfum einnig sérstakan speglasal með
frábæru úrvali af speglum. Og ekki má gleyma
líndeildinni sem selur teppi, púða og rúmföt, mikla
gæðavöru en á ótrúlega góðu verði.“
Það er góður andi í Tékk-Kristal og starfsfólk gerir
sér far um að sinna viðskiptavinum vel. Erla segir það
aðalsmerki búðarinnar, enda sé litið á viðskiptavini eins og
gesti og komið fram við þá í samræmi við það. „Starfsfólkið er
á öllum aldri, 18-68 ára,“ segir hún. „Okkur líður vel saman og
vinnum sem ein heild að þvi að gera fyrirtækið gott. Auðvitað
koma miserfiðir tímar en við tökumst á við þá. Það er alltaf
spurning um að gefast ekki upp og sjá
aðrar leiðir ef einhver leiðin reynist ekki
greið.“
Auk hefðbundinnar verslunar býður
Tékk-Kristall fyrirtækjum að velja og
pakka inn fyrir þau gjöfum til viðskipta-
vina og starfsmanna. „Við erum með mjög breitt vöruúrval
og getum valið gjafir af öllum verðflokkum og fyrir öll tæki-
færi. Inni á vefsíðu okkar, www.tk.is, er hægt að sjá vöru-
úrvalið og panta.“
Konur Vilja vera fullkomnar „Ég er eina stelpan í sex systkina
hópi,“ segir Erla. „Það gerði að verkum að ég lærði hvernig
strákar hugsa og það hefur komið sér vel í lífinu. Karlar og
konur hugsa nefnilega ekki eins. Mér finnst konur leggja
miklu meiri áherslu á fullkomnun en karlar og það að
vanda svo vel til verksins að ekkert sé nógu gott.
En auðvitað er það líka einstaklingsbundið."
Verslunarrekstur er í eðli sínu sveiflu-
bundinn og Erla er spurð hvernig hann
gengur. „Þetta er skemmtileg vinna og fjöl-
breytt og Kringlan er afskaplega skemmti-
legur vinnustaður," segir hún. „Hér höfum við
ekki fundið fyrir neinum samdrættí, þrátt fyrir
opnun stórrar verslunarmiðstöðvar í Kópavogi, og þeir
sem koma í Kringluna geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi
þvi hér er svo mikið úrval af alls konar verslunum.
Það má bara ekki gleyma því að velgengni er byggð á vinnu
og þetta er auðvitað talsverð vinna. En á meðan ég hef gaman
af vinnunni og hlakka til á hveijum degi að mæta í hana er
þetta frábært“SD
Á þeim 32 árum, sem
verslunin Tékk-Kristall
hefiir starfað, hefiir
ýmislegt breyst og vöru-
úrvalið aukist mjög.
124