Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 13
TIL SYRGJANDI MANNA . .
11
þeir viti ekkert um lífið eftir dauðann. Þeir skýra oss ekki frá
þvi, sem þeir sjálfir vita fyrir vist, heldur aðeins frá því, sem
þeim hefur verið kennt. En hvernig má slíkt fullnægja hugs-
andi mönnum nú á tímum?
Sannleikurinn er sá, að blind trú stendur á fallanda fæti,
en vísindaleg þekking ryður sér óðum til rúms. Vér getum
því ekki aðhyllzt nokkrar þær kenningar, sem koma i bága
við skilning vorn og heilbrigða skynsemi. Það er t. d. engin
skynsamleg ástæða til að hugsa sér, að menn geti eða megi
ekki beita vísindalegum rannsóknaraðferðum til að ráða fram
úr þeim viðfangsefnum, sem átrúnaðurinn einn hafði til með-
ferðar á umliðnum öldum. Þess vegna hafa guðspekingar og
sálarrannsóknarmenn snúið sér að viðfangsefnum þessum og
rannsakað þau vísindalega; og það er árangurinn af rann-
sóknum þeirra, sem ég ætla nú að skýra þér frá:
Vér erum andar, sem lifum nú sem stendur í efnisheimi,
— heimi, sem vér þekkjum þó aðeins að nokkru leyti. Alla
jarðneska þekkingu eigum vér skynfærum vorum að þakka,
en þar sem þau eru mjög ófullkomin, verður þekking vor í
molum. Vér getum t. d. séð þá hluti, sem fastir eru og áþreif-
anlegir. Vökva getum vér og einnig séð, nema þá, sem eru
fullkomlega gagnsæir. Aftur á móti eru flestar lofttegundir
með öllu ósýnilegar. Vísindalegar rannsóknir hafa leitt í ljós,
að til eru miklu smágjörvari efnistegundir en jafnvel hinar
þynnstu lofttegundir. En þar sem skilningarvitin geta ekki
orðið vör við þær, fáum vér enga vitneskju um þær með því
að nota þau rannsóknartæki, sem efnisheimurinn hefur fram
að bjóða.
En þrátt fyrir það, getum vér aflað oss þekkingar á þeim.
Vér getum sem sé rannsakað margt það, sem liggur handan
við landamæri þessa heims, með þvi að starfa aðeins i „hin-
um andlega likama“, því að hann hefur skynfæri engu síður
en efnislikaminn eða jarðneski líkaminn. Og þótt meginþorri
manna hafi ekki ennþá lært að beita þeim skynfærum, geta
menn þroskað hjá sér skynjunarhæfileika „andlega líkamans“
með sérstökum hætti. Vér höfum og reynsluna fyrir oss í