Morgunn


Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 36

Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 36
34 MORGUNN Væri tunglið okkar í t. d. einungis 80.000 km fjarlægð i stað hinnar raunverulegu, þá kynnu flóðin að vera svo öflug hjá okkur, að öll meginlönd jarðar hyrfu undir yfirborð sjáv- ar tvisvar á dag; jafnvel fjöllin myndu eyðast smám saman. Ef jarðskorpan hefði verið aðeins tíu fetum þykkri, væri ekki til neitt súrefni og þannig ekkert dýralif. Væru öll höf nokkr- um fetum dýpri, hefði kolefni og súrefni eyðst og ekkert jurta- líf mögulegt. Það er ljóst af þessum og öðrum dæmum, að ekki er einn möguleiki gegn milljarð, að lífið á plánetu okkar sé fyrir til- viljun. I öðru lagi: ÍJrrœSi lífsins íil þess aS ná tilgangi sínum er staSfesting þess, aS vitsmunir ráSa í öllu. Enginn hefur getað skilið, hvað lífið sjálft er. Það hefur hvorki þunga né stærð, en það býr yfir afli eða mætti; vax- andi rót getur mulið klett. Lifið hefur lagt undir sig loft, láð og lög, stjórnar frumefnunum og neyðir þau til að lúta vilja sínum. Lífið, myndhöggvarinn mikli, gefur öllu lögun; listamað- urinn, sem teiknar sérhvert lauf á hverju tré og ákveður lit hvers blóms. Lífið er tónskáld, sem kennt hefur hverjum fugli sinn ástarsöng og skordýrunum að kalla til hvers annars i milljóna-hljómkviðu smádýranna. Lífið er efnafræðingurinn óviðjafnanlegi, sem gefur kryddi og ávöxtum hragð sitt, rós- inni ilm sinn, breytir vatni og kolsýru í sykur og við og fram- leiðir með þvi súrefni, svo að dýr merkurinnar megi draga andann. Virðum fyrir okkur næstum ósýnilegan dropa af frymi, gegnsæju, kvoðukenndu, sem þó getur hreyft sig og dregur kraft sinn frá sólu. Þessi einfalda sella, þessi gagnsæi, dagg- arlíki ördropi, ber í sér lífsneistann og getur veitt þetta líf öllum lifandi hlutum, stórum og smáum. Máttur þessa ör- dropa er meiri en máttur jurtagróðurs, dýra og manna, því af honum er allt lif komið. Náttúran skapaði ekki lifið; eld- brunnin björg og saltvana höf nægðu ekki til þess að leggja til það sem þurfti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.