Morgunn - 01.06.1977, Side 48
46
MORGUNN
í sjónvarpi, og er þar ennþá auðveldara að fylgjast náið með
aðferðum hans og árangri.
Ég gerðist svo djarfur fyrr í þessu erindi, að leyfa mér að
skýra frá þeirri skoðun minni, að máttur til sálrænna lækn-
inga byggi i rauninni í hverjum manni, sem uppfyllti viss
hugarfars-skilyrði. Ég tel það stuðning við þessa skoðun, að
komið hefur í ljós, að sumir huglæknar virðast geta kennt
öðrum eða miðlað af lækningagáfu sinni. En Edwards er
einnig frægur fyrir þennan hæfileika. Sem dæmi má nefna
séra Axel Holmes, sem þjónaði söfnuði í Godalming, skammt
frá Burrows Lea, þar sem Edwards framkvæmir lækningar
sínar. Þessi prestur er nú fluttur til Kanada og vekja hug-
lækningar hans þar geysilega athygli.
Óhætt er víst að fullyrða, að engiim maður í Bretlandi fái
fleiri bréf en Harry Edwards. Það er ekki óalgengt að hann
fái meira en 10,000 hréf á viku. Flest eru það beiðnir um að
veita læknishjálp til fjarstaddra sjúklinga, eða það sem kallað
er á ensku „absent healing“, og séra Sveinn Víkingur heitinn
kallaði sendilœkningar.
Edwards segir, að Burrows Lea sé nú orðin andleg aflstöð,
og sérhverri beiðni fjarstaddra sé svarað með einhvers konar
útvarpsbylgju til sjúklinganna- Og órangur hefur komið ótelj-
andi sinnum í ljós, jafnvel á þeim sjúklingum, sem læknar
hafa talið ólæknandi.
Það hefur vakið athygh í sambandi við sumar þessara lækn-
inga, að þær eiga sér engu að síður stað, þótt sjúklingnum
sjálfum sé með öllu ókunnugt um það, að lækninga hafi verið
leitað fyrir hann á þennan hátt. Einn íslenzkur huglæknir
hefur orðið sérstaklega frægur fyrir slikar lækningar hér
heima á Fróni, að það er mannvinurinn Einar bóndi á Ein-
arsstöðum.
Við skulum nú bregða ljósi yfir venjulegt dagsverk Harrys
Edwards.
Dagurinn hefst á þvi klukkan niu að morgni, að einn af
aðstoðarmönnum hans, Georg Burton sækir póstinn. Sérstakt
sjálfvirkt tæki er notað til þess að opna umslögin. Síðan sezt