Morgunn - 01.06.1977, Síða 54
52
MORGUNN
1899, íjekk að fara með föður mínum og fórum við lausríðandi
inn fyrir Hvalfjörð. Þá var Björn Hjaltesteð enn á lífi, en
virtist mjög hrumur, og svo var hann skjálfhendur að hann
átti erfitt með að skrifa nafnið sitt. Hann tárfeldi þegar þeir
kvöddust, og sagði að þetta yrði í síðasta skiftið sem þeir sæjust
í þessu lífi, en „þinn lika hefi jeg ekki fyrirfundið, í öllum
greinum.“ Sú spásögn reyndist rjett, því að af einhverjum
orsökum fórst það fyrir, að faðir minn færi til Reykjavíkur
sumarið 1900, og þegar hann kom þangað fyrir jól 1901, var
Björn Hjaltesteð látinn.
Ef foreldrum mínum hefði þótt eitthvað miður um Benedikt
sem kaupamann, þá mundi þetta helzt hafa verið það, hve
lengi hann stóS (eins og það var kallað). Að sjálfsögðu vildu
þau ekki að slælega væri unnið um hábjargræðistímann. En
það var Benedikt ekki nóg; hann dreif sig á fætur fyrir allar
aldir, og vitaniega gátu þá ekki aðrir legið í rúmunum; að
sama skapi hjelt hann út á kvöldin. Hann varð að ráða. Hitt
kom svo engum við, að þegar á sumarið leið, stóð hann úti fram
á nótt til þess að athuga stjörnurnar, og endilega þurfti það að
vera hann, sem lokaði bænum. Hann mun hafa haft ekki lítið
af því, sem alment er kallað hjátrú — auk þess sem hann var
innilegur trúmaður i kirkjulegum skilningi. Hann var ágæt-
lega skáldmæltur og til eru eftir liann sjerprentaðir tveir
sálmar, Jólasálmur og Páskasálmur, sem báðir eru langir. Rit
hans eru ýmisleg og nokkuð mörg, þar á meðal skáldsögur, en
ekki mundu þær þorra lesenda að skapi nú á dögum; þær
fjellu meir að skapi gamla tímans.
Benedikt var hæglátur í framkomu, sjerlega viðfeldinn og
ávalt hinn sami, ekki hávær, en skýrmæltur, og var sem nokk-
ur virðuleiki hvíldi yfir öllu hans máli og allri framkomu.
Gamanyrði vissi jeg honum aldrei hrjóta af munni og hann
var í rauninni aldrei hversdagslegur. En altaf var ánægja að
hafa hann á heimilinu. Ekkert man jeg um kirkjuferðir hans,
en það er þegar sagt að trúmaður' var hann fyrir vist mikill
og einlægur, eins og sum rit hans sýna. Þau gaf hann öll út
á eigin kostnað.