Morgunn


Morgunn - 01.06.1977, Side 63

Morgunn - 01.06.1977, Side 63
BÆKUR 61 sóknum á þvi sem höfundur kallar æðri skynjun (Higher Sense Perception). Höfundur hefur komist að þeirri niður- stöðu, að sálrænir hæfileikar séu miklu algengari en almennt hefur verið álitið, og að þúsundir manna noti þess hæfileika á hinum ólikustu sviðum mannlegs lífs. Þegar þess er gætt, að höfundur þessarar bókar er hálærður og virtur visindamað- ur er ekki hægt að segja annað en sjónarmiðin séu all-nýstár- !eg, því hér koma fram allt önnur viðhorf en menn hafa átt að venjast frá visindamönnum um þessi efni. Það má heita einkennilegt, hvernig Karagulla komst útá þessar „hálu“ brautir rannsókna. Um þetta kemst höfundur svo að orði í bók sinni: „Þau ár sem ég stundaði rannsóknir við háskólann í Edin- borg og við taugarannsóknastofnunina í Montreal hafði ég unnið mér talsvert álit með rannsóknum mínum, og hlotið fyrir þær viðurkenningu, bæði í Evrópu og Ameríku. Þá komst ég í kynni við fyrirbæri, mjög sérstætt, sem hvorki gat talist til geðsýki né heldur samrýmst þvi, sem venjulega er álitið eðlilegt og heilbrigt.“ Og frásagnir og staðfestingar á þessum fyrirbærum fann hún bók, sem hún las fyrir beiðni vinkonu sinnar. Þessi bók fjallaði um dulræna hæfileika Edgars Cayces. Og höfundur segir: „Við lestur þessarar bókar var mér þokað inn á ókönnuð svið mannsliugarins og það átti eftir að beina öllu starfssviði mínu inn á nýjar brautir." Því þegar vísindamaðurinn dr. Karagulla uppgötvar það, að til hafi verið maður á 20. öld, sem hafi getað lagt sig á legubekk og látið sig falla í dásvefn, og í því ástandi athugað og greint frá einstaklingi í mörg hundruð kílómetra fjarlægð, sér gjörsamlega ókunnum, og lýst herbergi þvi sem persónan dvaldist í, útiliti hennar, klæðaburði, skapgerðareinkennum og líkamsástandi, svo og lýst hvers konar sjúkum líkamshlut- um og ástandi þeirra, og að auk læknað viðkomandi, þá rak vísindamanninn í rogastanz. Eða eins og dr. Karagulla kemst að orði: „Bókin var hrein ögrun við öll mín sjónarmið, sem reist voru á grundvelli læknisfræði og vísinda. Ég vissi talsvert

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.