Morgunn - 01.06.1977, Qupperneq 64
62
MORGUNN
um heila mannsins og taugakerfi og afleiðingar flogaveiki og
heilaskemmda. En fyrirbæri þau, sem gerðust hjá Cayce var
ekki hægt að útskýra sem neitt af þessu. Fyrirbærin kollvörp-
uðu gjörsamlega kenningum mínum um gerð mannsheilans.
öll sú þekking, sem ég hafði aflað mér á liðnum árum við nám,
rannsóknir og störf, gat ekki gefið skýringu á hæfileikum
Cayces.
Mér skildist að grundvöllur vísindalegra viðhorfa minna var
ekki eins traustur og ég hafði haldið. Vandamálið lá ljóst fjcrir.
Ég sá að ég átti um tvo kosti að velja: Annað hvort varð ég
að loka augunum fyrir staðreyndum og láta sem þær væru
ekki til, eða viðurkenna að til væru einstaklingar með furðu-
lega hæfileika, sem visindin voru ekki fær um að útskýra.“
Þessi mikla undrun vísindamannsins drs. Shaficu Karagullu,
þegar augu hennar opnast fyrir því, að fleira sé til á himni
og jörð en heimspeki hennar dreymi um, svo vitnað sé í Shake-
speare, sýnir Ijóslega hve mjög sérfræðingar vísindanna geta
lokast inní þröngum sjónarmiðum vísindalegrar efnishyggju.
Ef til vill er slík innilokun nauðsynleg þeim, sem ótruflaður
vill komast í fremstu röð í grein sinni og afla sér virðingar
vísindamanna. Á það skal ekki lagður neinn dómur hér. En
hitt er víst, að það þarf óvenjulegt þrek og hugrekki til þess
að skýra frá skoðunum, sem brjóta i bág við grundvallar-kenn-
ingar viðurkenndra vísinda. Verður þá stundum að leggja á
vogarskálarnar annars vegar vonir um frægð og frama og hins
vegar ákvörðun sannleiksleitandans, að láta ekkert aftra sér
frá því að rannsaka fyrirbæri, jafnvel þótt þau virðist brjóta
í bág við viðurkennd lögmál eðlisfræðinnar.
Þessi bók er sagan um slíkan visindamann, sem fómaði
framavonum sínum, fjárhagsöryggi og jafnvel orðstir í þágu
rannsókna á fólki með furðulega hæfileika.
Því þegar dr. Shafica Karagulla hafði sannfærst um hæfi-
leika Edgars Cayces hóf hún persónulega leit sína að öðru
sálrænu fólki, sem reyndist fáanlegt til þess að leyfa henni að
rannsaka hæfileika sína og hefja með henni samstarf. Og um
þessa leit hennar, kynni af ófresku fólki, rannsóknir og árang-
J