Morgunn


Morgunn - 01.06.1996, Side 20

Morgunn - 01.06.1996, Side 20
MORGUNN getum tileinkað lífi okkar og hallað okkur að. Aparigraha (a-parí-gra-ha) = einfaldleikinn Aparigraha felst í því m.a. að leyfa ekki græðgi að stjórna hugsunum okkar og athöfnum. Þar sem brahmacharya hafði meira að gera með innri veruleikann þá er aparigraha um ytri veruleikann og hvernig við verðum öll að aðlagast umheiminum. Sókn okkar í gæði þurfum við að beina að tilfinningalegri og andlegri vellíðan. Að vera „einfaldur" er að vera hjartahreinn, jákvæður og ábyggilegur, án skilyrða, undirferlis eða fals. Niyama eru fimm lögmál sem hjálpa okkur að skapa Lífstíl sem styður hin fyrri fimm lögmál yama. Shaoca (sja-ó-tsja) = skýrleiki/hreinleiki Shaoca fjallar um að hafa hreinleika, skýrleika, röð og reglu og einfaldleika á hlutunum, bæði innra og ytra, þ.e. í huganum, tilfinningunum og líkamlega. Þetta gildir líka um hinn stóra heim og umhverfismálin. Oft safnast fyrir í huganum t.d. mikið drasl m.a. vegna mikils áreitis utan frá, þá er mikilvægt að verða sér meðvitaður um það og hreinsa til. Santosa (san-tósa) = meðtekning/viðtekt Það skapar friðsæld hugans, að leyfa sjálfum sér og öðrum að vera eins og við erum í raun. Við veljum að elska og meðtaka lífið eins og það er á hverju augnabliki, í stað þess að láta 18

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.