Morgunn


Morgunn - 01.06.1996, Side 44

Morgunn - 01.06.1996, Side 44
MORGUNN Frances segist aldrei hafa lent í innri baráttu vegna heit- anna. Hún var aldrei fyrir að eignast hluti svo að fátæktin var henni ekki erfið. Og þar sem hún lagast vel að breytingum var hlýðnin henni ekki fjötur um fót. En hvað varðar einlífið: „Já, ég hef einhvern tímann þurft að takast á við það, þar sem mér er mjög eðlislægt að mynda náið samband við fólk og á oft erfitt með að setja því mörk. Hins vegar held ég að það heit meti ég mest, þar sem það stendur vörð um samband mitt við Guð. Eg trúi því að það gefi mér frelsi til að bregðast við hverju því sem hann kallar mig til. Ég þarf ekki fyrst að hugsa um mann, börn og heimili. I áranna rás finnst Frances sér hafa orðið æ ljósara að heitin í trúarlegu lífi, verði að vera Ieiðin að markinu en ekki markmiðið sjálft. Þau eru lífsmáti innan fagnaðarerindisins, sem reynt er að fylgja, en verði þau takmark, eru þau sjúkleg og heftandi. Allt þetta varðar frelsi til að svara kalli Guðs. Guð er alltaf á undan og tekur ákvarðanirnar. Guð bíður, kallar, togar í þig og stjakar við þér og þú verður einfaldlega að bregðast við því eða ekki. Við höfum val.“ Angela Therese Angele Therese er fædd og uppalin í London. Hún á tvo bræð- ur, sér eldri. Fjölskyldan var samhent og bjó nálægt Kensing- ton Gardens og gátu börnin leikið sér þar frjáls. Pabbi hennar var forstöðumaður útfararstofnunar, hæglátur og geðgóður maður, sem hún hændist mjög að, en móðir hennar viðkvæm og tilfinningasöm. Angela líktist henni en hafði líka til að bera sterkan vilja þegar hún ákvað eitthvað. „Ég hafði óskaplega frelsiskennd þegar ég dansaði,“ segir hún. „Ekkert jafnast á við það að berjast gegnum sólódans allt til enda og vita sig hafa gert það vel.“ 42

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.