Morgunn - 01.06.1996, Page 57
MORGUNN
Þannig var að við áttuni heima vestarlega í bænum og í
næsta nágrenni bjó kona, drykkfelld nokkuð og talin skyggn,
kölluð Eggrún. Seint eitt laugardagskvöld á vertíðinni 1962 er
ég nýkominn heim. Veður var rysjótt, suðaustan slagveður,
rigning og bræla. Dagurinn hafði verið erfiður á sjónum. Ég
ligg uppi í sófa í herbergi sem er inn af eldhúsinu, og er að lesa
í blaði. Heyri ég að einhver kemur inn, og er að tala við kon-
una frammi. Gengur síðan rakleiðis inn í herbergið til mín. Er
þar komin Eggrún. Hún snýr sér að mér og segir: “ Það fylgir
þér maður, hann gekk inn á eftir þér, er þú varst að koma
heim.“ Ég lít upp úr morgunblaðinu og spyr hana, hvort hún
geti lýst manninum. Hún segir hann vera frekar lágvaxinn en
þrekinn, í ullarpeysu með derhúfu, og að þetta væri góður
55