Morgunn


Morgunn - 01.06.1996, Page 81

Morgunn - 01.06.1996, Page 81
MORGUNN einhvern tíma? Og er þessi endanlegi tilgangur ekki líka undir þvf kominn að einstaklingurinn hafi beitt þekkingu sinni og trú til að gæða allar aðstæður einhverjum tilgangi? Staðreyndin er sú, að frá sjónarhorni lógóþerapíu er tilgangurinn og tilfínningin fyrir honum jarðbundið fyrirbrigði. En tilfinningin fyrir tilgangi felst í huga Frankls í því að verða sér meðvitandi urn þá möguleika sem felast í raunveru- leikanum. Með einföldum orðum mætti segja, að það væri að koma auga á hvernig hœgt er að bregðast við tilteknum aðstæðum. En hvernig fer manneskjan að því aðfinna tilgang? Frankl segir að „allt sem við getum gert sé að skoða líf fólks, sem virðist hafa fundið svar við spurningunni um hvað mannlegt líf snýst, og bera saman við þá sem ekki hafa fundið svarið.“ Samkvæmt kenningum lógóþerapíunnar eru þrjár aðalleiðir til þess að finna tilgang lífsins. í fyrsta lagi: Með því að skapa eitthvað eða drýgja dáð. I öðru lagi: Að upplifa eitthvað eða kynnast einhverjum, - með öðrum orðum það er ekki aðeins hægt að finna tilgang í verki heldur einnig í ást. Samt er þriðja leiðin til að finna tilgang lífsins mikilvægust þeirra allra. Jafnvel varnarlaust fómarlamb vonlausra aðstæðna sem er ofurselt örlögum, sem það fær ekki breytt, getur hafið sig upp yfir sjálft sig, vaxið sjálfu sér yfir höfuð og með því móti breytt sjálfu sér. Maðurinn getur snúið persónulegum harmleik upp í sigurgöngu. Dæmin sem Frankl tilgreinir af veru sinni í Auswitz sýnir þetta og sannar, en hann tilgreinir líka önnur dæmi. Hann segir: „Ég var yfirmaður á taugasjúkdómadeild á almennum spítala í 25 ár og varð þá vitni að því hvernig sjúklingum mínum tókst að snúa mótlæti upp í mannleg afrek. Reynslan hefur einnig fært mér heim sönnur á því að það er hægt að finna tilgang í þjáningunni. Vísindamenn við læknadeild Yale-háskóla „hafa undrast hve margir stríðsfangar úr Víetnam-stríðinu hafa lýst því yfir að þótt L 79

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.