Birtingur - 01.01.1964, Page 116

Birtingur - 01.01.1964, Page 116
leikanum, til að ná sem bezt tilgangi sínum. Leikformið hlaut því að verða einhæft og oft fátæklegt miðað við það, sem áður var. Nú var tímabilið á undan veruleikastælingunni ekki alls staðar neitt blómaskeið leikhússins, heldur þvert á móti tímabil grátklökkra mærðarfullra leikrita þar sem ekki var feng- izt við nein önnur vandamál en ýkt vanda- mál hjartans. Þetta gildir að vísu ekki um allt menningarsvæði okkar en stóran hluta af því. Stærstu höfundar veruleikastælingarinnar, Ibsen, Hauptmann, Shaw o. fl. voru ekki lé- legir höfundar vegna skoðana sinna á hlut- verki leikhússins, þeir voru góðir höfundar þrátt fyrir þær. Aðferð þeirra var ein af hin- um mörgu nothæfu aðferðum til að skrifa fyr- ir leikhús. Sú staðreynd, að við nútímamenn erum orðnir þreyttir á henni, er jafn eðlileg og þreyta þeirra á því, sem á undan þeim var. En „nútíminn" er ekki eins skýrt afmarkaður og sum tímabilin á undan. Þegar veruleika- stælingin hafði lifað sitt fegursta, opnaðist öll leikhúshefðin á undan henni sem óþekktur töfraheimur. Síðan hafa ýmsir kannað hann og lært margt af, hvað verður í framtíðinni er erfitt að seeja um, en sennilegt má þykja, að tilraunirnar til fagurrænni leikhúslistar, sam- ræmingar og skýrra heildaráhrifa sviðsverks- ins sem listaverks verði um nána framtíð í há- vegum höfð. Við höfum að vísu ekki enn unnið hug á veruleikastælingunni, andi henn- ar á enn sterk ítök víða. En árangur sá, sem ýmsir leikhúslistamenn hins nýja leikhúss hafa náð, sýnir að hér er sterk hreyfing á ferð. Góður árangur x list er alltaf tengdur einstakl- ingum, því er það, að hið nýja leikhús á sér oft stað á fáum stöðum innan menningar svæðis okkar þar sem hinir beztu listamenn eru að starfi. Hin evrópska leikhúshefð er um of í deiglunni enn til þess að árangur hennar sé jafn. Form hennar er ekki eins fast mótað og t. d. leikhúss Asíu, því getur gæðamunur- inn á sýningum verið gífurlegur. Beztur árang- ur næst þar sem góðir listamenn eru lengi saman að starfi, því markmið hins nýja leik- húss er oft fjarlægt því, sem algengt er og það gerir oft kröfur til leikara sinna, sem þeir eru ekki mjög vel undirbúnir að full- nægja. Afleiðingin er mikil lenging æfinga- tímans og jafnvel endurþjálfun. Leikhús for- tíðarinnar komst af með miklu skemmri æf- ingatíma, stundum svo skamman að okkur virðist það næstum óskiljanlegt, þetta tvær til fimm æfingar. Leikhúslistamenn nútímans gera strangari kröfur til sín en svo að þeim geti nægt slíkt. En samtímis vita þeir, að hinn stutti æfingatími þýddi ekki alltaf lélegt leik- hús. Hann var oftar sönnun þess að leikararn- ir voru slíkir meistarar í list sinni að þeir Jrurftu ekki fleiri æfingar. Verkin, sem leikin 112 BIRTINGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.