Birtingur - 01.01.1964, Blaðsíða 124
Heiðinginn var höndum tekinn
úr húsi drottins rekinn
blindur karl með bundnar hendur
burt til íslands sendur.
Og síðan viðlagið:
— Man ég man ég tíma tvenna
tár úr blindum augum renna.
Þarna er líka: Konan sem kyndir ofninn
minn: Fáir njóta eldanna, sem fyrstir kveikja
þá. Eða Nú sigla svörtu skipin. Og kvæðið
um Hallfreð vandræðaskáld sem er meðal
frægustu ljóða Davíðs.
Við skulum ekki gera þessa ræðu of langa.
Fyrsta heildarútgáfan af ljóðum Davíðs kom
1930. Og síðan hafa komið tvær eða þrjár
aðrar heildarútgáfur hans Ijóða. Hann ferð-
aðist mikið á þessum árum kringum 1930. Þá
hafði kreppa geisað harkalega í heiminum,
margar vonir brustu, og í ljóðum Davíðs í
bókinni í byggðum sem út kom 1934 þar er
ný beiskja, ádeila. í ljóðum hans hafði löng-
um komið áður fram samúð með þeim sem
eru fátækir og smáir einog í ljóðinu um Guð-
mund góða. En nú verður ádeilan bitur. —
Vökumaður hvað líður nóttinni, heitir heims-
ádeilukvæði:
Milljónir kveina af hungri og sorgum
svo heyrist um heima alla
fánum er lyft .. . lúðrar gjalla
unz lyginnar musteri hrynur.
Þarna er líka þjóðsögukvæðið Sálin hans Jóns
míns, allir þekkja það efni af Gullna hliðinu.
Til Unu, Aríta, þessi músík af strengjum
Davíðs hélt áfram að töfra: Loftið var titr-
andi af tónum, öll tilveran heit og þyrst, segir
í ljóðinu Aríta.
Ádeilan logar enn í næstu bók Davíðs: Að
norðan 1936 og verður hún stundum nöpur
og nístandi einsog í kvæðinu Snjómokstur.
Síðan líður langt þar til Ný kvæðabók kem-
ur út 1947 og síðan Ljóð frá liðnu sumri
1956 og loks í dögun 1960.
Mikið hafði gengið á í veröldinni. Önnur
heimsstyrjöldin geisar. Atómsprengjan táknar
nýja heimsmynd. Og nýtt fólk vex upp með
nýjum talsmönnum. í ljóðum sem Davíð birti
eftir styrjöldina kemur víða fram sársauki
vegna þess að enn ógnar mannkyninu styrj-
aldarhættan og illskan lymskast flá og býður
tortímingu alls með hrynjandi borgum og
angist mannkyns og milljónadauða.
Með árunum sefast þó óróinn og mildast
þankinn, skáldið lítur með heiðríkju og ró
yfir veröldina. Hann dregur sig út úr glaumn-
um og situr einn í kastala sínum á Akureyri,
120
BIRTINGUR