Birtingur - 01.01.1964, Page 150
KONSTANTINOS KAVAFIS: ÞRJtJ LJÓÐ
Baldur Ragnarsson þýddi eftir
enskum og sænskum þýðingum
(Konstantinos Kavafis fæddist 1868, lézt 1933. Átti heima
í Alexandríu mestan part ævinnar, grískumælandi skAld
undir framandi hálfmAna Islams. Aðstæður firrtn hann
grlsku ni'ttíðarlífi; það var f fortíðinni sem han it fann
list sinni grundvöll. C. M. Bowra segir f ritgeið sinni
um skAldið í bókinni „The Creative Experiment": „Hann
tengdist ekki nútímanum hcldur þátímanum. veröld sem
hann þekkti aðeins úr bókum, cn var honum svo raun-
veruleg að fyrst þar lifði hann heimalífi með eigin þjóð.
Með óvenjulega stefnufastri samkvæmni leitaði hann og
fann það öryggi sem hann þarfnaðist, ekki þar sem enn
var þróttmikil hin evrópska arfleifð, heldur f hálf-
gleymdri, brotakenndri fortíð, sem hann vakti til lífsins
með þrótti snilligáfu sinnar")
íþaka
Þegar þú leggur út — á vit íþöku,
ber £ram ósk þá að leiðin verði löng.
rík að ævintýrum, rík að þekkingu.
Lestrýgóna og Kýklópa,
hinn ævareiða Posídon — hræðstu þá eigil
Þvílíkum munt þú aldrei mæta á þinni leið,
ef aðeins hugsun þín er há, ef aðeins
úrvalin tilfinning fyllir anda þinn og líkama.
Lestrýgóna og Kýklópa,
æðisham Posídons munt þú eigi finna,
ef þú flytur þá eigi með þér í sál þinni,
ef sál þín særir þá eigi fram á feril þinn.
Ber fram ósk þá að leiðin verði löng,
margir þeir morgnar á sumri þegar þú stefnir
hrifinn og þakklátur nær — inn til framandi
hafna.
Akkerum varpa hjá fönískum
verzlunarstöðvum,
og afla þér dýrindis varnings a£ flestri gerð,
perlumóður og kórals, fílabeins og rafs
og allskyns efna sem ilma, munuðlegra,
já, eins yfirtaksmikils af ilmi og þér er unnt.
Legg þína leið til margra egypzkra borga
til þess að læra og læra af hinum lærðu.
Geym ávallt íþöku þér í sál!
Þangað að ná með vissu þér er skapað.