Birtingur - 01.01.1964, Side 158
TIL LESENDA
Birtingur hefur aldrei fylgt háttum hins
reglufasta bókhaldara, sem sezt í stólinn sinn
á mínútunni níu morgun hvern og hverfur
mæðulegur til dyra á slaginu fjögur. Heftin
hafa fengið að vaxa í næði, og því hefur út-
koma þeirra aldrei getað íylgt fyrirfram
ákveðnum degi. Þó er nú svo langt um liðið,
síðan Birtingur var seinast á ferð, að skýring
verður að fylgja afsökunarbeiðni til kaup-
enda.
Öllum mun kunnugt, að útgáfa Birtings hef-
ur jafnan verið hjástundaiðja örfárra manna,
sem mörgu öðru þurftu að sinna. Seinustu
missiri hefur högum þeirra verið svo háttað,
að þeir hafa ekki getað rækt Birting sem
skyldi: Thor Vilhjálmsson hefur dvalizt lang-
dvölum í Suðurlöndum, Jón Óskar verið á
faraldsfæti utan lands og innan, Hörður Ág-
ústsson sökkt sér í rannsókn íslenzkrar byggð-
armenningar, Björn Th. verið að skrifa mynd-
listarsögu íslands, og undirritaður hafði fast-
ráðið „að fara í land eftir tíu ára þrásetu við
árina“. Sýndist því horfa fremur dauflega um
„framhaldslíf" Birtings. En sannleikurinn er
sagna beztur: útgefendum varð því Ijósara sem
lengra frá leið, að án Birtings er alls ekki hægt
að vera, og fjöldi kaupenda hefur á sömu
forsendu beinlínis krafizt þess, að útgáfunni
verði haldið áfram. Skýringarinnar er skammt
að leita: Birtingur er eina frjálsa menningar-
ritið hérlendis, og slíks rits er þörf, meðan
frjáls hugsun, frjáls sköpun leitar sér leik-
vangs á íslandi. Og hvað er þá um að tala
annað en heilsa að nýju reifur og virðingar-
fyllst með kæru þakklæti fyrir síðast?
Þetta er stærsta Birtingshefti sem út hefur
verið gefið. Ætlunin er, að lesendum berist
jafnmargar lesmálssíður til viðbótar á þessu
ári, og yrði þá allt komið í rétt horf um ára-
mót.
Kunnáttumenn um útgáfumál hafa löngum
legið okkur á hálsi íyrir að verðleggja Birting
allt of lágt. Því er ekki að neita, að það lýsir
nokkrum virðingarskorti að selja árganginn
lægra verði en goldið er fyrir leikhúsmiða að
lapþunnri brandaramysu. En hér er á fleira
að líta: þeir eru tiltölulega fáir, sem standa
straum af útgáfukostnaði íslenzkra menning-
arrita, og ekki allir loðnir um lófana. Þess
vegna höfum við verið svo hófsamir í verð-
lagningu, að það hefur bitnað á útgefendum
og þó sérstaklega ritinu sjálfu. Vegna síhækk-
andi verðlags varð þó ekki umflúið að þoka
árgjaldinu töluvert upp á við. Eftir sem áður
er áskriftargjald Birtings lægra en verð tveggja
aðgöngumiða að Járnhausnum.
Með þessu hefti lýkur 10. ári Birtings í nú-
verandi gerð. Við þökkum kaupendum tryggð
við ritið, ekki sízt þeim sem verið hafa með
frá upphafi, og hvetjum þá til að halda fast
um eldri árgangana, því að kompletteintak af
Birtingi er orðinn fágætur gripur sem selst á
þúsundir króna.
Gleðilegt sumar, góðar stundir.
Einar Bragi