Vera


Vera - 01.10.2002, Síða 9

Vera - 01.10.2002, Síða 9
ég hætti eftir viku. Ég vildi vinna við kvikmyndir og réð mig sem skrifta, án þess að kunna neitt, í bíó- myndina Skammdegi efir Þráin Bertelsson. Síðan fór ég í strangt eins árs kvikmyndagerðarnám í Middel- sex á Englandi og fékk að því loknu starf sem fram- leiðandi hjá ríkissjónvarpinu þar sem ég vann í þrjú ár. Þar framleiddi ég m.a. tvær heimildamyndir um látin skáld, þau Kristján Fjallaskáld með Matthíasi Viðari Sæmundssyni og Davíð Stefánsson í sam- vinnu við Gunnar Stefánsson." Um tíma var Ásthildur ritstjóri fréttablaðs fyrir ríkisstofnun en dauðleiddist og hætti fljótt. Kvik- myndagerðin kallaði og árið 1992 stofnaði hún Litlu gulu hænuna og hóf framleiðslu og leikstjórn á heimildamynd um Ragnheiði Jónsdóttur rithöfund sem hún vann í samstarfi við Dagnýju Kristjánsdótt- ur bókmenntafræðing. Þær fengu styrk til verksins sem síðan var sýnt í ríkissjónvarpinu. „Síðan hef ég reynt að harka sjálf í þessum bransa sem vissulega er erfiður en hann lætur mann ekki í friði. Reyndar varð mikil breyting þegar DV- Cam vélarnar komu fyrir nokkrum árum. Það er staf- ræn upptökutækni þar sem fólk getur tekið upp myndirnar sjálft í stað þess að vera alltaf með tökulið með sér," segir Ásthildur og telur upp mynd- ir sem hún hefur framleitt sjálf. Þar má nefna sjón- varpsmynina Palli var einn í heiminum, sem var sýnd í sjónvarpi á Norðurlöndunum, heimilda- myndina Saga vonar sem fjallar um Vestur-íslend- inga, Söguna af Silvíu og Darra sem fjallar um ungt fólk sem er að hefja búskap og er innlegg í jafnréttis- baráttuna. Sú mynd var gerð í samvinnu við Náms- gagnastofnun og var sýnd á Stöð tvö og hefur verið notuð til kennslu í í lífsleikni. Myndin Æsa og Gauti var líka gerð í samvinnu við Námsgagnastofnun og fjallar um krakka í sveit. Það er hálftíma leikin mynd fýrir yngri börn og hefur notið mikilla vinsælda í skólurn. „Mig dreymir að sjálfsögðu um að gera alvöru, leikna bíómynd og hef fengið undirbúningsstyrk til handritsgerðar að mynd sem gerist í Þingeyjarsýslu og fjallar um stelpu sem eignast svart barn. Svo er ég með heimildamynd um listakonuna Rósku í undir- búningi í samvinnu við Lóu Aldísardóttur. Við feng- um undirbúningsstyrk frá Kvikmyndasjóði til þess að vinna að handriti og munum vinna mikið á Italíu á næstunni." Frábærar og duglegar stelpur En hvernig kom það til að Ásthildur fór að fylgjast með lífi tailenskra kvenna í Norður-Þingeyjarsýslu? „Ég hafði lengi haft áhuga á að búa til heimilda- mynd um líf asískra kvenna hér á landi og hafði bor- ið hugmyndina undir marga en engir sýndu því áhuga. Löngun mín kviknaði eiginlega þegar ég kenndi tailenskum konum íslensku um tíma í Náms- flokkum Reykjavíkur. Mér fannst þessar konur svo áhugaverðar og varð forvitin um sögu þeirra og bak- Pam og Noi heima ÍTailandi grunn. Svo kynntist ég Noi norður í Ásbyrgi og hún kynnti mig fyrir Pam. Mamma mín er úr Oxarfirði þannig að þetta eru mínar slóðir og mér fannst frá- bært að kynnast líka mönnum þeirra, Isak og Svein- birni. Þeir höfðu kynnst stelpunum þegar þeir fóru til Tailands ásamt þriðja stráknum að norðan sem býr á Kópaskeri með konu sinni Sunan frá Tailandi. í uppliafi ætlaði ég að hafa pörin þrjú í myndinni en síðan varð ég að takmarka mig við hin tvö til að gera úr þessu heillegri sögu. Það helgaðist m.a. af því að ég fór með þeim til Tailands en sú saga er mjög mik- ilvæg í því að gefa heildarmynd af lífi þeirra. Noi og Pam eru báðar frá Surin héraði í norður Tailandi þar sem fólk er mjög fátækt. Ég heillaðist strax af þeim báðum, þær eru skemmtilegar og ein- lægar og vildu allt fyrir mig gera þótt þær áttuðu sig í raun ekkert á því hvað ég væri að gera og væru orðn- ar svolítið leiðar á mér þegar ég kom hvað eftir ann- að með myndvélina og spurði þær spjörunum úr. En það er svo sterkt í trúaruppeldi þeirra að vera kurt- eistar og bera virðingu fyrir sér eldra fólki að þær gerðu allt fyrir mig, þótt ég sé bara tuttugu árum eldri en þær. Ég vildi gefa innsýn í bernsku þeirra, drauma og þrár og sýna hvernig þeir draumar hafa ræst. En lífi þeirra fylgja einnig sorgir þar sem þær vita alltaf af fólki sínu lifa við sára fátækt heima í Tailandi. Ég reyndi að draga upp heiðarlega og raunsæja mynd af lífi þeirra og vona að mér hafi tekist að búa til glugga inn í líf þeirra. Ég varð vör við breytingar á þeim og lífi þeirra þennan tíma sem ég fylgdist með þeim. Þetta eru frábærar og duglegar stelpur og ég dáist að því hvað þær hafa jákvætt hugarfar og mikla aðlög- unarhæfileika. Þegar ég var búin að safna að mér öllu þessu efni átti ég erfitt með að vinna úr því enda var ég orðin tengd stelpunum, þær orðnar vinkonur mínar. Maðurinn minn sá því alveg um að klippa myndina en hann heillaðist líka af verkefninu og þessum einstöku manneskjum." EÞ

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.