Vera


Vera - 01.10.2002, Page 11

Vera - 01.10.2002, Page 11
í formála bókarinnar segir: „í þessari bók tala konur sem fæddu heima, á bílastæði, á spítala og í sjúkrabíl. Þær hafa ólíka sýn á móðurhlutverk- ið, líkama sinn, meðgöngu, fæðingu, mæðra- vernd, ljósmæður og lækna. Það sem einni finnst inngrip, finnst annarri líkn. Eitt eiga þær þó allar sameiginlegt; þær vilja láta hlusta á sig og að tek- ið sé mark á skoðunum þeirra. Raddir kvennanna kenna okkur að ekki er til neitt eitt rétt fyrir fæð- andi konu, heldur er það val hverrar og einnar sem skiptir máli og ber að virða. Hver kona er einstök og á rétt á að velja það sem henni hentar best hverju sinni.“ Þær segja að þær hafi ekki órað fyrir einlægni og trúnaði kvennanna sem skrifuðu sögur sínar og opnuðu sína innstu sálarkima. „Fyrir margar konur er sagan í þessari bók persónulegt uppgjör sem tók á að skrifa. Hver og ein valdi hverju hún sagði frá og dró fram það sem henni fannst skipta máli, vildi deila með öðrum, vildi taka á eða breyta. Margar notuðu tækifærið til að vinna úr reynslu sem þær höfðu ekki treyst sér til að endurupplifa." Eftir því sem sögunum fjölgaði segja þær að bókin hafi fengið rödd sem kvaddi sér hljóðs og rauf þá einangrun sem hefur umlukið fæðingarsögur íslenskra kvenna. „Sögurnar hafa verið sagðar í lokuðum hópi kvenna og lifað í núi munnlegrar geymdar. Með tímanum hafa þær fallið í gleymsku. Eina skráða heimildin um þær eru staðlaðar fæðingar- skýrslur samdar af heilbrigðisstarfsfólki og varðveittar á heil- brigðisstofnunum. I þessari bók má lesa það sem leynist á milli lína í fæðingarskýrslunni, þögla hlutann, þann sem við köllum fæðingarskýrslu tilfinninganna og er vitnisburður kvennanna sjálfra," segir í formála bókarinnar. Úr sögunni Konur með einn í útvíkkun fá enga samúð Ljósmóðirin vatnshrædda og kunningjarnir úr heimafæð- ingafélaginu hófu ritdeilur á síðum dagblaðanna um velferð kvenna í fæðingu þar sem ásakanir um hroka og vanjjekk- ingu féllu ó báða bóga. Mér fannst ég vera kaðall í reiptogi ó milli þessara aðila sem báðir voru að reyna að vinna mig á sitt band. Eg gafst upp. Eg fann að ég hafði engan veginn öðl- ast nægilega þekkingu til að geta sjálf og hjálparlaust greint hvað væri mér fyrir bestu. Öli skilaboð sem óg fékk voru misvísandi og mótsagnakennd og ég treysti mér ekki til að hugsa um þetta meir. Ég beið þess er verða vildi og vonaði að allt færi vel. Ég beið. Þeir útreikningar sem við hjónin, ljósmóðirin og sónarinn höfðum unnið bentu allir á sömu dagsetninguna. Þrátt fyrir að ég vissi mætavel að þessi dagsetning væri bara gróf áætlun um komutíma barnsins varð ég fýrir töluverðum vonbrigðum þegar dagurinn kom og fór án þess að drægi til tíðinda. Mér fannst að verið væri að svindla á mér. Ég var orðin langþreytt á að kjaga um allt með bumbuna út í loftið. Tíu dögum eftir settan dag, kvöld eitt í maímánuði árið 1999, fór loksins eitthvað að gerast. Verkirnir komu með fimmtán mínútna millibili og voru satt best að segja alveg þolanlegir. Ég sem hafði alltaf haldið að þetta yrði óbærileg- Bro.t úr bókirmi ur sársauki allan tímann, hafði ekki áttað mig á því að í bíó eru bara sýndar lokamínútur erfiðisins. Ég hringdi upp á fæðingardeild og spurði hvenær ég ætti að koma. „Hvað er langt á milli hjá þér vina?" spurði sú sem svaraði mér. „Kort- er," svaraði ég frekar aumingjalega. „Jæja elskan mín, þá skaltu bara taka panódíl og bíða róleg," svaraði sú á vaktinni. Ég var svo utan við mig að ég þakkaði þar með fyrir og lagði á án þess að fá svar við spurningunni. Mór fannst eitt- hvað kjánalegt við að hringja strax aftur og þar sem langt var liðið á kvöld ákvað ég að fara að ráðum þessarar konu, taka panódíi og fara að sofa. Þó að verkirnir væru langt frá því að vera óbærilegir voru þeir ekki það vægir að ég gæti sofið al- mennilega. Ég vaknaði á fimmtán mínútna fresti alla nóttina og herptist í kuðung £ eina til tvær mínútur. Klukkan níu um morguninn fór ég á fætur, illa sofin og pirruð og uppgötvaði mér til skelfingar að enn voru fimmtán mínútur á milli verkja. Þýddi þetta að fæðingin gæti dregist í marga daga? Úr sögunni Fæðing í sjúkrabíl Þegar sjúkrabíllinn rann í hlað náði ég naumlega að ganga fram og leggjast í börurnar. Að komast út í sjúkrabílinn var erfiðasti hluti fæðingarinnar, bæði líkamlega og andlega. Þegar ég var kornin aftur í bílinn með manninn minn hjá mér og allar hurðir lokaðar leið mér ólýsanlega. Bíllinn rann af stað og mér var svo létt, við vorum bara tvö ein í litlu rými aftur í bílnum, ég gat hellt öllum mínum hugsunum og til- finningum yfir hann, það var enginn sem truflaði samskipti okkar. Enginn sem skipti sér af eða dæmdi það sem okkur fór á milli. Nú gátum við einbeitt okkur að þessari fæðingu. Hann lagði áherslu á að veita mér styrk á meðan ég tók á honum stóra mínum. Skyndilega fann óg að barnið var nán- ast komið í heiminn og pabbinn var að hugsa um eitthvað allt annað. Það reyndist rétt, kollurinn var kominn og barnið allt nánast á sömu stundu. Ég náði ekki einu sinni að remb- ast. Ég trúði þessu ekki, maðurinn minn var kominn með litla krílið í hendurnar. Þetta var búið og óg rétt að byrja. Við gerðum þetta alein og mér fannst við hjónin ósigrandi.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.