Vera


Vera - 01.10.2002, Page 37

Vera - 01.10.2002, Page 37
Kaffivélar og kaffiblöndur frá Rydens Undanfarin ár hefur fólk komist á bragðið með að drekka gott kaffi, sættir sig ekki lengur við þunnan uppáhelling eða rammt og staðið kaffi. Á kaffihúsunum sem hafa skotið upp kollinum hefur fólk lært að meta vel lagað gæðakaffi og gerir því meiri kröfur um að fá gott kaffi, hvort sem er á vinnustaðnum eða heima. Þetta veit fyrirtækjaþjónusta Rydenskaffis hf. sem hefur sérhæft sig í sölu gæða kaffivéla til fyrirtækja og veitingastaða og að sjálfsögðu kaffi líka. ljtatAbnej Ttæk lier. Se bags/den., - Rydenskaffi kaffibrennsla var stofnað af sænska at- hafnamanninum Karl Ryden árið 1927 og seldi kaffi undir nafni fyrirtækisins. Baldur Þórisson og fjöl- skylda hans keyptu fyrirtækið árið 1969 og ráku kaffibrennsluna til ársins 1996. Þau hófu innflutning á Gevalia kaffi árið 1978 og hafa nú alfarið snúið sér að innflutningi. Auk þess að flytja inn Gevalia kaffi og krydd flytur fyrirtækið inn Maxwell House kaffi, Marabou súkkulaði og Maarud flögur. „Við bjóðum alhliða þjónustu til fyrirtækja og veitingastaða, seljum þeim bæði kaffi og kaffivélar og erum til taks 24 tíma sólarhringsins ef eitthvað er ekki eins og það á að vera, t.d. ef kaffið er ekki nógu gott," segir Hermann Ástvaldsson sölustjóri fyrir- tækjaþjónustunnar. „Við bjóðum kaffivélar fyrir lítil og stór fyrirtæki, allt frá litlum espresso vélum upp í vélar sem þjóna 200 til 300 manns. Vinsælustu kaffivélarnar fyrir fyr- irtæki eru sjálfvirkar vélar þar sem aðeins þarf að þrýsta á hnapp til að fá venjulegt kaffi, espresso, cappucino, mokka kaffi eða súkkulaði. Litlu, ítölsku, espresso kaffivélarnar eru líka vinsælar enda fram- leiða þær gæðakaffi og eru mjög þægilegar. Við erum í góðu sambandi við fyrirtæki erlendis og getum út- vegað alls kyns kaffiblöndur. Einnig seljum við ýmsa fylgihluti, eins og bolla og glös." „Það eru þrjú atriði sem skipta máli þegar búa á til gott kaffi," segir Þórir Baldursson forstjóri Rydenskaffis. „Það er gott hráefni, góður búnaður og að rétt sé hellt upp á kaffið. Sjaldnast er það kaffið sem er ekki nógu gott, það eru oftar hin atriðin sem standast ekki kröfurnar. Þar verður fólk að koma sér upp réttum búnaði og þar höfum við góðar lausnir." Rydenskaffi hf. Miðhrauni 16, Garðabæ, sími 575 5500, www.kaffi.is

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.