Vera


Vera - 01.10.2002, Síða 39

Vera - 01.10.2002, Síða 39
boðinu og Kvennalistanum um það sem Vera var að fjalla um. En við átt- um aldrei greiðan aðgang að stóru fjölmiðlunum, aldrei. Það var talsverð- ur þagnarmúr um Veru af því að við vorum ekki að skrifa um stóru póli- tíkina. Við vorum ekki með viðtöl við stjórnmálaleiðtoga sem sögðu eitt- hvað sem rataði strax inn í fréttir. Það var meira verið að stinga á einhverj- um kýlum og opna umræðu um málefni sem stóru fjölmiðlarnir höfðu mjög takmarkaðan áhuga á. Við vorum því alltaf dálítið underground. Þegar við vorum að byrja þá var þetta algjör sjálfboðavinna, frá A-Ö. Við skrifuðum blaðið, við settum það upp, við tókurn myndirnar, við próf- arkalásum, við fórum með það í prentsmiðju og við pökkuðum því í plast. En það gekk náttúrulega ekki nema í takmarkaðan tíma. Þá var svona smátt og smátt farið að greiða laun íyrir vinnuna, aðallega í kringum fjár- málin, dreifinguna og þá hluti, svo var farið að borga fyrir útlitið en sjálf ritstjórnin var ekki greidd fyrr en 1989 þegar ég var ráðin til að ritstýra ^baráttan þarf á einhverri upplifun einhverju svona: „ahaf já einmitt" i 'i i Ég man vel eftir umræðunni á fundum um nauðsyn þess að gefa út svona blað. Sjálf var ég lengi við- loðandi blaðið og ég skrifaði í það alveg frá upphafi. Það var hinsveg- ar Malla, eða Magdalena Schrarn, sem átti hugmyndina að nafninu. Hugmyndin á bak við það var að nota annarsvegar nafnorðið, vera, saman ber mannvera, eða mann- eskja, og hinsvegar sögnina að vera, að vera eitthvað, einhverstað- ar. En svo fannst okkur líka svolítð ilott að vera í línu með blöðum eins og þýska blaðinu Emrna með því að nota kvenmannsnafn í titilinn. Það varð snemma mikil um- ræða í kringum blöðin, og þá kannski ffekar í kvennahópum. Við fengum oft mikil viðbrögð, hring- ingar og lesendabréf, og eins varð oft heit umræða inni í Kvennafram- blaðinu. Það var aldrei greitt neitt fyrir að skrifa í blaðið. Ég man að okkur fannst það svo sjálfsagt að konur gæfu þá vinnu. Þegar við fyrst rákumst á það að einhverjar utanaðkomandi konur vildu fá borgað fyrir að skrifa rit- dóma eða önnur sérhæfð skrif þá rak okkur í rogastans. Þá voru þetta kon- ur sem höfðu lifibrauð sitt af því að skrifa og fannst ekkert sjálfgefið að gera það fyrir ekki neitt. Það er lýsandi fýrir þennan tíma að lengi stóð til að ráða ritstýru og þá kom strax upp hugmyndin um að ráða Möllu því hún var alltaf vakin og sofin yfir Veru. Hún skrifaði í blaðið, hún orti ljóð sem reyndar birtust undir dufnefni, hún átti teiknimyndasögur sem lengi birtust á baksíðunni og fleira og fleira. Okkur fannst því eðlilegt að ráða hana til verksins en það vildi hún aldrei. Hún sagði: „Það borgar sig ekki. Það er miklu nær að ráða einhverja aðra af því að ég mun alltaf skrifa fýrir Veru ókeypis hvort sem er." Hún lagði á þetta algerlega kalt mat. „Finnið þið einhverja aðra sem þarf á vinnu að halda og framleiðir þá líka efni fyrir blaðið um leið." Þetta var mjög lýsandi fyrir þankaganginn en um leið dæmigert fyrir Möllu. Hún var mikill frumkvöðull í þessu alla tíð og hún hafði alltaf þessa ofsalegu bjartsýni sem einkenndi allt starfið fyrstu árin. Annars var hópurinn sem stóð á bak við Veru svolítið breytilegur og alls ekki alltaf sá sami, það var talsvert af konum sem komu og fóru. Ein sem lengi var viðloðandi og mig langar að nefna var Kicki Borhammar sem býr nú í Svíþjóð. Hún skrifaði kannski ekki mikið af því hún var sænsk en hún ritstýrði blaðinu um tíma og sá um útlit blaðsins í mörg ár. Þá var alltaf nokkuð af myndlistarkonum viðloðandi blaðið í upphafi, þær voru þá sérstaklega í útlitinu. Annars vorum við alltaf að redda myndefni og notuðum þá börnin okkar eða ættingja. Blaðið var stofnað 1982 eftir að Kvennaframboðið bauð fram til borgar- stjórnar, áður en Kvennalistinn kom til sögunnar. Við byrjuðum af algjör- um vanefnum. Við vorum fátækar eins og kirkjurottan því við áttum ekki 39

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.