Vera - 01.10.2002, Page 45
mynd: Þórdis
Nýlega hafa Þröstur Þórsson lögmaður
og Hanna Sigurðardóttir lögfræðingur
opnað lögmannsstofuna HÞ lögmenn í
Kirkjustræti 4, (Kirkjuhvoli). Stofan veitir
alla almenna lögfræðiþjónustu og sinnir
öllum helstu málaflokkum en Hanna
mun að mestu sjá um þau mál sem snúa
sérstaklega að málefnum kvenna og
barna. Þar koma m.a. til skilnaðarmál,
forsjárdeilumál og barnaverndarmál.
Hanna segist hafa skúraö sig í gegnum lögfræðinámið.
Hún ól ein upp fjögur börn en þegar hún var fertug
ákvað hún að setjast á skólabekk og hóf menntaskóla-
nám. Að því loknu settist hún í lagadeild HI og lauk
henni á fjórum árum. Á námsárunum tók hún þátt í
starfi Kvennaráðgjafarinnar sem er sjálfboðavinna þar
sem konum er veitt ókeypis lögfræðiráðgjöf. Sú reynsla
og almenn reynsla hennar af lífinu er kveikjan að áhuga
hennar á því að starfa sérstaklega að málefnum kvenna
og barna.
„Mér finnst félagslega kerfið hér á landi hafa brugð-
ist mörgum konum sem standa höllum fæti félagslega
og fjárhagslega og eru með börn á framfæri. Margar kon-
ur þurfa að leita sér lögfræðiaðstoðar t.d. við skilnað,
samvistarslit og í umgengnismálum. Félagslega kerfið
virðist ekki telja heimilt að veita styrk til lögfræðiað-
stoðar í slíkum málum nema að mál sé orðið að barna-
verndarmáli. Það er bagalegt, einkum í þeim tilfellum
þar sem hagsmunir barnanna eru í húfi." segir Hanna en
bætir við: „Reyndar eru nýju barnaverndarlögin skref í
rétta átt því í þeim er rýmri réttur en var til að veita fjár-
hagsaðstoð vegna lögmannskostnaðar í málum sem
orðin eru barnaverndarmál. Eg hef komið að mörgum
erfiðum málum af þessu tagi og hvet konur til að gefast
ekki upp. Það er því miður of algengt."
Hanna hefur boðið SÁÁ að veita sjúklingum á Vogi
og Vík ókeypis lögfræðiráðgjöf og mun hún sinna því
starfi um helgar ef til kemur. Hún vill leggja sitt af
mörkum til hjálpar þeim sem berjast við vímuefna-
vanda. Sími HÞ Lögmanna er 511 1812 og beinn sími til
Hönnu er 894 1813. Stofan hefur veffangið www.logafl.
is og netfang Hönnu er hanna@logafl.is
W0-