Vera


Vera - 01.10.2002, Síða 67

Vera - 01.10.2002, Síða 67
meiru. Hann hikar ekki við að pína konur til sagna með því að snúa upp á handleggina á þeim, og þess á milli slær hann hverja píuna á fætur annarri utanundir. Og þá eru ótalin þau fjöl- mörgu skipti sem hann notar konur sem skildi fyrir ofbeldi sem að hon- um er beint, þannig að þær fá ýmist á sig högg eða skot. En batnandi mönnum er best að lifa og frá og með The Spy Who Loved Me hættir Bond að beita konur líkamlegu ofbeldi og til að hnykkja enn betur á þessari bragarbót taka vondu kall- arnir strax til við utanundirsláttinn. Konur til skrauts og illkvendi Margar hafa bent á að kvenhlutverk í Bondmyndunum hafi sjaldan verið sláandi athafnamikil, konurnar eru I iðulega notaðar til skrauts og ef einhver töggur reynist í konu þá er hún iðulega illkvendi, eða þá að töggurinn er úr henni um leið og hún fellur fyrir Bond. Bondarinn þykir hafa verið nokkuð lengi að taka við sér hvað varð- aði ný viðhorf til kvenhlutverka, en það var ekki fyrr en í Tomorrow Never Dies sem Bond treysti sér til að taka bardagaglaða dömu upp á arminn, en það var náttúru- lega fegurðardrottningin, ballettdansarinn og bardaga- meistarinn Michelle Yeoh sem skyndilega er ekki bara aukahlutur á armi Bonds heldur kann að berja frá sér sjólf. Seldur fyrir upplýsingar I fyrstu Pierce Brosnan myndinni, GoIdenEye, var þeg- ar farið að djarfa fyrir ákveðnum breytingum á kven- hyllinni en þar var nýi 'M-inn' orðinn 'Emm-a', sem í þokkabót var pirruð á Bond og virtist hafa smitað hina trúföstu Moneypenny og gert hana afhuga öllu vinnu- staðadaðri. Svo langt gekk grínið að Bond var bent pent á að kynferðisleg áreitni hefði nú verið opinberlega tek- in upp í orðabók Bond-skólans. En svo áttuðu þær sig í tíma fyrir Tomorrow Never Dies, og eru þar orðnar venjuleg Bond-fön eins og við hin(ar), og í staðinn er unnið skemmtilega með breytinguna úr 'M' í 'Emmu' í umræðum um eislu og pumpanir; leikkonan Judy Dench sannar að það þarf sannarlega ekki púng til að geta tekið þátt í hasar, auk þess sem þær tvær gera með sér samsæri um að senda Bond uppí til gamallar kær- ustu í’uppljóstrunarleit. Þannig er Bond beinlínis seld- ur fyrir upplýsingar; og gott ef ekki læðist að konu sá grunur að þessi söluvænleiki Bondarans hafi verið stef í myndunum allan tímann? Q1JP.I mwuit? í Borgarvefsjánni er aó finna upplýsingar um alla göngustíga og gönguLeióir í Reykjavík. Njóttu þeirra möguLeika sem útivistar- svæói Reykjavíkur bjóða upp á meó aðstoó Borgarvefsjárinnar. ■ § § >

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.