Vera - 01.12.2002, Síða 10
Nafn: Elsa Sigríður Jónsdóttir
Aldur: 63 ára
Starf: Lektor við Kennaraháskóla íslands
Ahugamál: Utivera og skógrækt
Hve lengi áskrifandi? Eitt og hálft ár
Hvernig finnst þér Vera? Áhugavert blað
Kennari
leikskólakennaranna
„Eg kenni sálfræði og uppeldisgreinar við leikskólabraut
Kennaraháskólans en var áður kennari við Fósturskól-
annn frá 1979 og þar til hann var sameinaður KHÍ ásamt
Þroskaþjálfaskólanum og íþróttakennaraskólanum," segir
Elsa Sigríður um starf sitt og bætir við að áður hafi hún
verið grunnskólakennari, kennt unglingum og haft gaman
að. „Eg tók síðan BA próf í sálfræði við HÍ og masterspróf
í uppeldis- og menntunarfræðum og finnst bæði skemmti-
legt og jákvætt að kenna leikskólakennaranemum. Aðsókn
í námið mætti vera meiri en við sjáum samt núna merki
um að hún er að aukast. Fjarnám er mikilvægur þáttur í
starfseminni en boðið hefur verið upp á það síðan 1991.“
Þegar Elsa Sigríður er spurð um áhugamálin segir hún
að þau tengist m.a. starfinu þar sem hún hefur lagt á-
herslu á gengi fatlaðra barna og tvítyngdra í leikskólum en
það er einmitt eitt af áhugamálum hennar. MA ritgerðin
hennar byggðist á rannsókn á þessu efni og segir hún að
áhuginn stafi m.a. af því að sjálf á hún fatlaðan son.
Af öðrum áhugamálum nefnir hún að útivist sé sér
mikil lífsnæring. Hún fer alltaf í eina langa gönguferð á
sumri og hefur gengið víða um hálendið en hefur líka far-
ið í gönguferðir í útlöndum, t.d. í Pýreneafjöllum og á
Mallorca. „Þess á milli geng ég um Elliðaárdalinn og verð
aldrei leið á því,“ segir hún. „Ég vil endilega nefna líka að
ég hef mikinn áhuga á skógrækt, hef verið að rækta upp
mel við Hafravatn ásamt fjölskyldu minni þar sem við eig-
um lítið hús. Ég les líka mikið, bæði efni sem viðkemur
starfinu og skáldsögur og ævisögur."
Jafnrétti fyrir alla
Þegar Elsa Sigríður er spurð um Veru segir hún að sér
finnist blaðið áhugavert, hún sá það oft í gamla daga hjá
vinkonum sínum sem hún vann með í Fósturskólanum en
svo varð hún ekkert vör við það í mörg ár. Þegar henni var
boðin áskrift í fyrra ákvað hún að slá til og gerast áskrif-
andi.
„Mér finnst jafnréttisumræðan fara í hringi, það virðist
alltaf þurfa að segja sömu hlutina aftur og aftur og þá get-
um við sem eldri erum orðið leiðar. En ég geri mér grein
fyrir því að ný kynslóð þarf að heyra það sem erum búnar
að heyra og skilja. Ég er ánægð með það að blaðið skuli
fjalla um jafnrétti á breiðari grunni en bara kynjajafnrótti -
við þurfum að berjast íyrir jafnrétti allra. Mér finnst t.d.
gaman að lesa um baráttu kvenna í öðrum heimsálfum
fyrir jafnrétti, því það er grundvöllur fyrir almennum
framförum. Eftir því sem efnið er fjölbreyttara þess betra
finnst mér blaðið," sagði Elsa Sigríður að lokum.
EÞ