Vera - 01.12.2002, Page 16
Elísabet Þorgeirsdóttir
myndir: Þórdís
ns
s_
<u
>
16
Fátækt er dýr
Fátæktin er dýr fyrir samfélagið, hún skapar ótal önnur vandamál eins og sjúkdóma, fé-
lagslega erfiðleika og framtíðarvandamál. Börn sem fara á mis við allt það sem önnur
börn fá missa sjálfstraustið og sjálfsvirðinguna. Margir fátækir foreldrar hafa þegar
misst þetta tvennt en það sem þeim svíður sárast er að sjá börnin sín fara illa vegna
þeirra aðstæðna sem þau búa við. Nú fer í hönd einn erfiðasti tíminn fyrir fólk sem ekki
getur lifað af því sem velferðarkerfið deilir út - jólin með öllum kröfunum um veraldlega
hluti. Margt fólk líður mikið á þessum tíma. Það getur ekki veitt sér eða sínum neitt og
því miður grípur sumt fólk svo mikil örvænting að það er í mikilli hættu að fara sér að
voða. Þessi mál eru dauðans alvara, það verðum við vör við á hverjum degi.
Þessi orð sagði Garðar Sverrisson, formaður Öryrkja-
bandalags íslands í viðtali við Veru. Hann hafði þá
lesið upp úr bréfi sem honum barst þegar mikið
mæddi á honum í formannsstarfinu, frá konu sem er
öryrki og var að hvetja hann til dáða. í bréfinu lýsir
hún erfiðum aðstæðum sínum og vonleysi og kallar
sjálfa sig „smælingja hans Davíðs.“ „Við fáum mikið
af bréfum og heyrum oft í fólki þar sem sjálfsvígs-
hugleiðingar eru því miður alltof algengar," segir
Garðar.
Islenskt velferðarkerfi var byggt upp á síðustu öld
fyrir baráttu þeirra sem vildu jöfnuð og samhjálp.
Fyrirmyndin var frá velferðarríkjum Evrópu sem
byggðu upp kerfi þar sem heilbrigðisþjónusta og
menntun væri ókeypis og almannatryggingar kæmu
úr sameiginlegum sjóðum sem þjóðfélagsþegnar
hefðu greitt í með sköttum sínum. Þannig byggði fólk
upp kerfi sem tryggði því framfærslu í ellinni og ef
það yrði fyrir því að missa starfsgeluna.
Undanfarin ár hefur sífellt minna verið hægt að
treysta á þetta velferðarkerfi enda er fólk stöðugt
hvatt til þess að greiða í eigin sjóði til að tryggja sér
öryggi við heilsutap og elli. Þannig er í raun grafið
undan þeirri hugsun að allir eigi rétt á vernd og sóu
jafnir, enda getur bara fólk sem á eitthvað afgangs
lagt fyrir í slíka sjóði. Það má því segja að íslenskt
velferðarkerfi standi ekki lengur undir nafni.