Vera - 01.12.2002, Qupperneq 30

Vera - 01.12.2002, Qupperneq 30
Þórhildur Einarsdóttir viðskiptafræðingur Skattalegar ívilnanir í tengslum við sparnað Prófkjöri stjórnmáiaflokkanna er nýlokiö og Ijóst að málefnin sem tekist verður á um fyrir komandi alþingiskosningar verða marg- vísleg. Eitt af því sem hefur verið mjög áberandi í umræðunni síð- ustu vikurnar eru skattamálin og hefur mikið verið rætt um háa tekjuskatta einstaklinga hér á landi. Það kemur svo í Ijós á næsta kjörtímabili hvaða leiðir verða farnar í skattamálum einstaklinga en í ár er hins vegar síðasta tækifærið að notfæra sér þann mögu- leika að fjárfesta í hlutabréfum sem hefur verið eina leiðin til að lækka tekjuskatt. Hins vegar er hægt að fresta tekjuskattgreiðsl- um og njóta ýmissa skattalegra ívilnana með því að greiða í við- bótarlífeyrissparnað. Með því að notfæra sér þá sparnaðarleið geta einstaklingar frestað skattgreiðslum þar til við útgreiðslu líf- eyris og þá er bara að vona að komandi kynslóðir alþingismanna vinni ötullega að því að lækka tekjuskattinn. Hlutabréfaafsláttur heyrir brátt sögunni til Frá árinu 1984 hefur einstaklingum staðið til boða að fjárfesta í íslenskum hlutabréfum og hafa þeir notið skattalegrar ívilnun- ar vegna slíkra kaupa. í gegnum tíðina hefur töluverður fjöldi einstaklinga nýtt sér þennan kost og náði hámarki á árunum 1998 til 1999 í kjölfar mikils uppgangs á innlendum hluta- bréfamarkaði. Árið 2000 tók að halla undan fæti á hlutabréfa- markaðnum auk þess sem unnið hefur verið markvisst að því að fella skattaafsláttinn út í þrepum. Síðustu tvö ár hafa því mun færri nýtt sér þennan kost og eins og áður sagði stendur þessi möguleiki fjárfestum til boða í síðasta sinn nú í ár. Lækkun á tekjuskatti getur numið tæpum 31.000 kr. Til að hljóta hámarksfrádrátt frá tekjuskattstofni á næsta gjald- ári þarf einstaklingur að fjárfesta fyrir kr. 133.333 og nemur lækkun á tekjuskatti þá kr. 30.832. Þessar upphæðir eru allar tvöfaldar fyrir hjón og sambýlisfólk. Þá ber að athuga að lækk- un á tekjuskatti fæst einungis só verið að auka við eign í hlutabrófum. Hlutabréfin þarf að eiga yfir fimm áramót en á tímabilinu er hins vegar í lagi að selja hlutabréfin séu önnur keypt innan þrjátíu daga. Þeim sem hafa hug á að notfæra sér þennan kost er bent á að afla sér nánari upplýsinga hjá sér- fræðingum banka og fjármálafyrirtækja. Lífeyrissparnaður kemur til frádráttar á tekjuskattstofni Gríðarlegar breytingar hafa orðið í lífeyrismálum á allra síð- ustu árum og stigin mörg framfaraskref í þeim tilgangi að auka sparnað og tryggja fjárhagslega afkomu á eftirlaunaárun- um. Einstaklingar geta nú í auknum mæli haft val um það í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða auk þess sem launþegar geta nú greitt meira í lífeyrissjóð en þau 10% sem skylt er að greiða samkvæmt lögum. Árið 1999 var viðbótarlífeyrissparnaður kynntur til sögunnar og upphaflega mátti launþegi greiða aukalega 2% í slíkan sparnað en árið 2001 var þetta hlutfall aukið í 4%. Mótframlag launagreiðanda er 2,0% og að auki er mót- framlag ríkisins allt að 0,4%. Einstakling- ur með kr. 250.000 í mánaðarlaun leggur kr. 10.000 í sparnaðinn en atvinnurekandi og ríkið greiða kr. 3.600 til móts við hann. Upphæðin sem einstaklingurinn greiðir eftir skattfrestun nemur einungis kr. 6.146. Hagstæðasta sparnaðarformið í dag Þetta er því ótvírætt eitt af hagstæðustu sparnaðarformunum sem í boði eru. Það sem greitt er í lífeyrissparnað kemur til frádráttar á tekjuskattstofni á því ári sem greiðslur fara fram og frestast skattgreiðsl- ur því til efri áranna þegar útgreiðsla líf- eyris hefst, auk þess sem inneignin er undanþegin fjármagnstekju- og eigna- skatti. Eins og áður hefur verið bent á er skattalegt hagræði viðbótarlífeyrissparn- aðar mikið umfram annan almennan sparnað sem felst í því að ekki er greiddur 10% fjármagnstekjuskattur af viðbótarlíf- eyrissparnaði, enginn eignaskattur eða erfðafjárskattur. Lífeyrissparnaður er ekki aðfararhæfur og þau iðgjöld sem greidd eru í séreignarsjóði erfast að fullu. Mikið og fjölbreytt úrval sparnaðarleiða Hægt er að vera með viðbótarlífeyris- sparnað hjá lífeyrissjóðum, bönkum, sparisjóðum og verðbrófafyrirtækjum. Margir kostir standa þeim til boða sem ætla sér að greiða í viðbótarlífeyrissparn- að og kann fólki að finnast allílókiö að greina hvaða kostir henta sér best. Það er afar misjafnt hvað hentar hverjum og ein- um og þarf helst að taka tillit til aldurs viðkomandi og hvaða hugmyndir hann hefur um ávöxtun og áhættu. Það má þó segja að með viðbótarsparnað líkt og ann- an sparnað þarf að kynna sér vandlega hvað er í boði og umfram allt að leita sér aðstoðar sérfræðinga við valið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.