Vera - 01.12.2002, Side 45
Hér sést hver vandamál vina Vinalínunnar eru
Byrjun á lausn vandans getur verið
að tala um hann
Hún segir að stundum finnist þeim sem hringja
að ekki sé nein leið út úr vandanum, fólk só kannski
orðið lasið, gamalt eða einmana og finnist að það
eigi hvorki ættingja né vini. Einnig geti verið að fólk
sé að flytja frá útlöndum og eigi í erfiðleikum með að
komast inn í samfélagið. En þar sem er bara um
símaþjónustu að ræða getur starfsfólk Vinalínunnar
ekki gripið inni í vandamál, það getur hins vegar
bent á möguleika til hjálpar og hefur góðar upplýs-
ingar um þá aðila sem vinna með einstök vandamál.
Þau fá líka reglulega til sín fyrirlesara sem fræða þau
um ýmis mál, t.d. einelti, einmanaleika, tilfinninga-
greind o.fl.
„Að vísa fólki annað er samt vandmeðfarið því
það getur virkað sern höfnun, eins og við séum að
segja: Ég nenni ekki að hlusta á þig, farðu bara eitt-
hvað annað. En ef það leysir úr vandanum að benda
fólki á hina ýmsu þjónustuaðila gerum við það og
það er þá undir fólkinu sjálfu komið hvernig það
nýtir sór þá möguleika sem við bendum á. Við sjálf
veitum ekki sérfræðiþjónustuna, við vinnum þarna
sem venjulegt fólk, þótt margir séu jafnvel sérfræð-
ingar á einhverju sviði. Við hlustum vel og reynum
að greina vandann þótt við getum ekki leyst hann.
En það að hringja og byrja að tala um vandann getur
oft opnað fólki leiðir til lausnar."
Hefur kærleikann að leiðarljósi
Hún segir að hún hafi lært margt af þessu starfi og
finnist hún eiga orðið marga vini, þótt hún viti ekki
hvað þeir heita og myndi ekki þekkja þá á götu. Hún
segist þekkja raddir margra og finnist það góð til-
finning að liafa lagt fólki lið. Hún leggur mikla á-
herslu á þá virðingu sem er borin fyrir þeim sem
hringja, þau geti treyst því hundrað prósent að ekki
sé fleiprað með það sem fram fer í trúnaðarsamtöl-
unum
„Mig hafði lengi langað að láta gott af mér leiða
en er ekki sú manngerð að vilja láta á mér bera. Mér
fellur betur að vinna á bak við og því hentar þetta
starf mér mjög vel. Ég er sannfærð um að við gerum
mörgum gott, við fáum oft svo falleg orð frá vinum
okkar sem liringja. Það er líka mikilvægt að fólk sé
ekki feimið við að viðurkenna að því líði illa og
þurfi á stuðningi að halda. Það kemur fyrir okkur öll
einhvern tíma í lífinu, það er bara misjafnt hvernig
við höndlum það. Að taka á málum með kærleika og
opnum huga er leiðarljós mitt í þessu starfi. Það hef-
ur alltaf verið mín leið í lífinu að reyna að sjá lausn-
ir á vandamálunum í stað þess að gera mál flóknari
en þau eru.“
Sími Vinalínunnar er: 800 0464.
Félagsleg vandamál
□ Einmana
■ Stríðni/Einelti
■ Eigið sjálfsvfg
Sálræn vandamál
■ Einelti □Sjálfsmynd DSektarkennd
□ Söknuður/Sorg ■Sams.erfiðl. viö fjölsk DMissætti við aðra
■ Sjálfsvíg annarra □Leiöi BÞunglyndi
Stofnaðir 1939
PRÓFANÁM - FRÍSTUNDANÁM
Oldungadeild á grunn- og framhaldsskólastigi.
Fjölbreytt tungumálanám.
Verklegar greinar og myndlistarnámskeið.
Námsaðstoð fyrir skólafólk.
Sérkennsla í lestri og skrift.
Upplýsingar í síma 551 2992
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Mjódd
Netfang: nfr@namsflokkar.is
Heimasíða: http://www.namsflokkar.is
SVO LENGILÆRIR SEM LIFIR