Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 30

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 30
12 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÆLAGS ÍSLENDINGA eða stökkva. En margt bendir ótvírætt til þess, að frelsis- og framfara-andi þjóðhátíðar þeirra í Milwaukee árið áður eigi dýpstu ræturnar að því, að stappa í þá stálinu og hrinda strax í framkvæmd þessum nýlenduleitum þeirra, því þótt flestir bændur og rnarg- ir lausamenn flyttu að heiman með óðalsjarðar vonir í brjósti, þá sýndist ekki glæsilegt þegar vestur kom, að flytja allslaus og fákunnandi út í eyði- héruð og villiskóga. Það varð því að hvetja þá og brýna í nafni ættjarðar sinnar, að verða henni til ódauðlegs orðstírs og sæmdarauka í sínum nýju heimkynnum sem sjálfstæð og sérstæð bændaþjóð en ekki vinnulýður og lítt launaðir dagkaupsþrælar — eða, þegar verst lét í ári, matvinnungar, með hlunnindum, sem frá íslenzku sjónar- rniði séð, hefðu þá strax flotið að feigð- arósi í stað þess, líkt og laxinn, að stikla fossana eins og Bjarni amtmað- ur, skáldið, kemst svo snildarlega áð orði. Úr þessu raknaði þó víðast lrvar furðu fljótt og alls staðar þar, sem jarðvegur var hentugur til hveitirækt- ar eins og enn bera vitni um sumar ný- lendur íslenzkra landnema og bújarð- irnar gróðursælu og vel hýstu, er numdar voru fram yfir síðustu alda- mót eins og hveitiræktar nýlendur þeirra í Saskatchewan-fylki, sem í heild sinni er stærsta bújarða nýlenda Is- lendinga, sem var að byggjast frá 1891 til 1909, og liggur um 400 mílur norð- vestnr af Winnipeg, sem er miðpúnkt- ur Canada frá austri til vesturs. Hér að framan var drepið á bágar ástæður Islendinga í Kinmount, er að heiman komu 1874. Er ómögulegt að gizka á hver örlög þeirra hefðu orðið þar undir handarjaðri Canadastjórnar og umboðsmanns hennar ef ekki hefði ljúfur leiðarengill birtst þeim þar í holdi og blóði Englendingsins og ágæt- ismannsins trúarsterka, John Taylors, þá á sjötugs aldri, er fékk því fram- gengt við Canadastjórn í Ottawa, að landskoðun yrði hafin vestur í Rauðár- dal og nýlenda numin þar handa Is- lendingum, ef hagkvæm fyndist. Var sú för farin af honum, Sigtrygg Jónas- syni og fleirum, og landspilda mikil valin sunnarlega á vesturströnd Winni- pegs-vatns, sem landar alment nefna enn í dag Nýja Island. Fluttu Islend- ingar þangað vestur frá Kinmount, og ýmsum öðrum stöðum þar eystra, seint um haustið, 1875, og komu um vetur- nætur til þess staðar, er þeir síðar nefndu Gimli, og það nafn ber land- nám þeirra hjá Canada mönnum og raunar mikið stærri fláki. Nýja Island átti að verða aðal-ný- lenda Islendinga vestan hafs, þótt það tækist ekki, því hún átti langt í land að taka út vöxtinn. En hún varð líka mjög snemma á árum móðir tveggja farsælla nýlenda: Dakota-byggðar í Bandaríkjunum 1878 og Argyle-bygðar í Manitoba 1881. Var mikill útflutn- ingur úr Nýja Islandi á þeim árum, sem kipti mikið úr vexti hennar uffl langt skeið, þótt nú sé það bygðarlag orðið að öllu samanlögðu ein farsæl- asta nýlendan, sem Islendingar námu, er engu síður má þakka veiðinni í Winnipegvatni en afurðum jarðanna auk betri vega og járnbrauta, sem ekki fengust þó fyrr en seint og síðar meir, nýlendubúum til stórkostlegs hnekkis nokkuð fram yfir síðustu aldamót. Ef til vill mætti einnig bæta því við, að Islendingar í Nýja Islandi hafi auk
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.