Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 59

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 59
VESTUR-ISLENZK LJÓÐSKÁLD 41 3. Stephan G. Stephansson var fædd- ur 3. okt. 1853 á Kirkjuhóli í Skaga- íirði, en bæði kotið, þar sem skáldið fæddist, og hin kotin tvö í nágrenninu, þar sem hann ólst upp, eru nú komin í eyði. Síðustu þrjú ár sín á Islandi var Stephan vinnumaður í Mjóadal, efsta bæ í Bárðardal. Foreldrar hans, þó fá- tæk væru, voru bæði “vel greirid og hneigð til mennta” (S. Nordal). Bók- menntahneigð og áberandi skáldskap- argáfa voru einnig í ættum skáldsins. Sumarið 1873, nítján ára að aldrei, fluttist Stephan vestur um haf með for- eldrum sínum og öðru ættfólki. Þrisvar sinnum nam hann land vestra; fyrst í Shawano County í Wisconsin 1874, þvínæst í Garðarbyggð í Norður-Dakota 1880, og loks 1889, er hann staðfestist í islenzku byggðinni í Alberta, skammt frá Markerville. Háði hann þar harða og langa brautryðjenda-baráttu, en tók jafnframt sinn fulla þátt í félags- og nienningarlífi byggðar sinnar og lagði sinn drjúga skerf til þróunar hennar og þrifa. Og þar lést hann, nær hálf- áttræður, 19. ágúst 1927. Eins og kvæði hans bera órækt vitni, festi Stephan djúpar rætur í nýbyggð- inni sinni og hefir lýst fegurð hennar í öllunr blæbrigðum árstíðanna á ógleym- anlegan hátt í sumum fegurstu og and- Ukustu kvæðurn sínum. Kornungur byrjaði hann að yrkja; elztu kvæðin í Andvökum eru frá 1868- 69, en fyrsta prentað kvæði hans, kveðja til fslands, birtist í Norðanfara á Akur- eyri 1873. Eftir 1890 fóru kvæði hans að hirtast reglulega í íslenzkum blöðum og tirnaritum vestan hafs. Fyrsta kvæða- safn hans, Úti á víðavangi (sérprentun hr öldinni) kom út í Winnipeg 1894. hessar eru aðrar kvæðabækur hans: Á ferð og flugi (Reykjavík, 1900), And- vökur, I-III (Reykjavík, 1909-10), Kol- beinslag (Winnipeg, 1914), Heimleiðis (Reykjavík, 1917), Vígslóði (Reykjavík, 1920), Andvökur, IV-V (Winnipeg, 1923) og Andvökur VI (Reykjavík, 1938), með formála eftir séra Rögnvald Pétursson. Tvisvar hafa kvæði Steph- ans einnig komið út í úrvali: Andvökur (Úrval, Reykjavík, 1938), mikið safn, gefið út með ítarlegum og snjöllum inngangi um skáldið eftir dr. Sigurð Nordal, og Úrvalsljóð (Reykjavík, 1948), sem skáldkonan Hulda bjó til prentunar. Hins mikla og merka safns Bréfa og ritgerða skáldsins (Reykjavík, 1938-48) er sérstaklega getið í ritgerð- inni urn vestur-íslenzk skáld í óbundnu máli. Þó að hann yrði að vinna hörðum höndum bóndans alla daga fyrir sér og sínum og heyja óvæga baráttu frum- býlingsins, varð Stephan eigi aðeins einn af allra afkastamestu, heldur einn- ig einn af mestu skáldum Islands að fornu og nýju. Þegar litið er á lífskjör hans, sæta bókmentaleg afrek hans hreinni furðu; þau bera vitni frábærri snilligáfu, ódrepandi sköpunarþörf, og óþreytandi trúnaði við skáldlistina. — Heitið sjálft á kvæðasafni hans, And- vökur, sem samtals eru fullar 1800 lbs. að stærð, segir sína sögu. Á andvöku- nóttum, rneðan aðrir nutu svefns og hvíldar, orti skáldið ljóð sín, eða festi á blað þau, sem fæðst höfðu í önnum dagsins. Kvæði hans voru, eins og hann segir í einu bréfa sinna, “Fæst fædd að degi til”, heldur eftir miðnætti. Það dásamlega er, að skapandi skáldgáfa hans og ljóðþörf efldust í glímunni við hin andvígu kjör, fremur en hið gagnstæða. Feikileg afkastasemi Stephans í Ijóða- gerðinni var þó eigi hið undrunarverð-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.