Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 68

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 68
50 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÆLAGS ISLENDINGA Bæði um efni og málfar endurspegl- ar kveðskapur hans umhverfi það, sem hann “lifði og hrærðist í” áratugum saman. Æfilangt vann hann fyrir sér með erfiðisvinnu, bændavinnu og öðru slíku, og vitna kvæði hans og vísur um náin kynni hans af hveiti-þreskingu og annari akuryrkju. Þau bera því einnig vitni live mikið hann hafði - haft við búpening sarnan að sælda um dagana, kýrnar og fjósið eru eftirlætis yrkisefni hans, hvort heldur er í gamni eða kyndugum heimspekilegum athuga- semdum. Því að honum var sú fágæta list lagin, að geta fært hin hversdags- legustu og að því virtist auðvirðileg- ustu viðfangsefni í búning snjallra háðvísna eða alvarlegri skáldskap al- rnenns gildis. Hann var að mestu mað- ur sjálfmenntaður, en víðlesinn í ís- lenzkum bókmenntum, og hafði einnig talsvert kynnt sér amerískar og enskar bókmenntir. Aldrei gisti hann ætt- landsstrendur eftir að hann hvarf það- an innan við tvítugt, og hefði hann þó verið þar aufúsugestur. Hann lést að heimili sínu í N. Dakota byggðinni ís- lenzku 24. okt. 1936. Mjög snemma kom hagmælska K. N. í ljós, og honum var frábærlega létt um að yrkja. 1 meir en hálfa öld gerði hann löndum sínum beggja megin liafs- ins glatt í geði með vængjuðum og bráðsmellnum gamankveðskap sínum, enda var liann tvímælalaust mesta og sérstæðasta kímniskáld þeirra í samtíð sinni. Nokkurt safn af kveðskap hans Kviðlingar, kom út í Winnipeg 1920, með formála eftir Wilhelm Paulson, en heildarsafn, Kviðlingar og kvæði (Reykjavík, 1945), með inngangsrit- gerð eftir Richard Beck, sem bjó safn- ið til prentunar, og minningum um skáldið eftir séra Harald Sigmar, ná- granna hans í N. Dakota um langt skeið og aldavin. Leiftrandi og hugnæm kímni K. N. er aðallega fólgin í frumlegum og fjöl- breyttum orðaleik. Hann var mikill snillingur í Jrví að bregða nýju Ijósi á lilutina með fimlegum málbrögðum og með Jsví að koma lesandanum á óvart, þegar minnst varði. Sveitungar hans og viðburðir í heimahögum eru löngum skotspænir hans, Jró að hann leiti stundum lengra til fanga. Tíðast er glettni hans góðlátleg, vekur fremur hlátur en hún valdi varanlegum sárs- auka; stundum eru örvar háðnepju lians Jjó hárbeittar, en orðfimin altaf söm við sig. Vinfengi hans við Bakkus verður víða vart í kveðskap hans, en vínbannslögin voru honum að sama skapi þyrnir í augum. Kírnnin varð einnig í höndum hans heilnæmt uppeldismeðal, því að sönn kímni á rætur sínar í næmri og þorsk- aðri jafnvægiskennd. 1 spegli kímni hans sáu menn sjálfa sig, hið broslega í fari sínu og lífið almennt, í sannara ljósi. 1 víðtækara skilningi hjó hann i ádeilum sínum að þröngsýni, heimsku og hleypidómum, skinhelgi og yfir- borðsmennsku. En hann var einnig nógu mannlegur til Jress að geta skop- ast að sjálfum sér, þegar svo bar undir. Grunnt er jafnframt löngum á samúð hans, og djúp alvara ósjaldan undir- aldan í vísum hans og kvæðum. A langri æfi, og við misjöfn kjör, hafði hann eignast samúð með smælingjum og olbogabörnum lífsins, enda kvaðst hann sjálfur vera meira í ætt við glat- aða soninn en ríka manninn. Barn- gæsku hans var viðbrugðið og klæðist fögrum búningi í mörgum vísum hans. Innilega tók hann einnig þátt í sorgunr
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.