Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 71

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 71
VESTUR-ISLENZK LJÓÐSKÁLD 53 kvæði, eins og “Sögunarkarlinn”, “Halta Finna” og “Guðsríki”, er sýna ótvírætt rí'ka Ijóðgáfu höfundarins og göfuga lífsskoðun lians. Hann hefir auðsjáanlega opið auga fyrir misrétti þjóðfélagsskipulagsins, og rík samúð hans er sterkur strengur í flestum þess- um kvæðum. Átakanleg er lýsing hans á Höltu Finnu, sem lífið hefir leikið svo grátt, að hún “flækist á milli búa”. Jafn glögg og samúðarrík er lýsingin á “Sögunarkarlinum”, þó að sú myndin sé sterkari og hvassari dráttum dregin. Skáldgáfa Sigurðar kom þó stórum betur í Ijós í næstu kvæðabók hans, Kvistir (Reykjavik, 1910) Hér eru mörg kvæði þar sem saman fara ágætur búningur og skáldleg fegurð, svo sem “Mús í gildru”, “Jólahugsun” og “1 leiðslu”. Margar lausavísurnar eru einnig prýðilega kveðnar, þrungnar að hugsun og tilfinningu. 1 smákvæðinu “Stökur” (“Ef eg gæti gleðirós grætt á lífsins hjarni”) lýsir skáldið fagurlega lífsskoðun sinni, og sú heita og djúpa samúð með mönnum og málleysingjum er löngum undirstrumurinn í kvæðum hans. Hann sækir tíðum yrkisefni sín beint í mannlífið umhverfis sig; hann finnur sárt til þjóðfélagsböls samtíðar sinnar, og þessvegna verða kvæði hans °ft óvæg ádeila á ranglæti og hverskon- ar kúgun. Hann er eldheitur byltinga- °g umbótamaður, enda var hann á sín- um tíma (1901) einn af stofnendum Jafnaðarmannafélagsins í Winnipeg. Umbótaáhugi hans lýsir sér í mörgum aí þessum kvæðurn hans, t. d. í ágætis- kvæðinu “Hvar er verk til að vinna?”, sem er mælsk og máttug eggjan til háða, og gætir hins sama ekki síður í kröftugum kvæðum hans, frumsömd- um og þýddum, í þágu bindindismáls- lns, sem hann hefir barist fyrir af brennandi áhuga meðal íanda sinna, en hann hefir áratugum saman verið áhrifamikill formælandi íslenzkra Good-Templara. Á öðrum sviðum hef- ir hann einnig verið djarfmæltur mál- svari lítilmagnans, og aldrei hikað við að ganga fram fyrir skjöldu á þeim vettvangi. 1 Kvistum eru, auk frumsömdu kvæðanna, ágætar þýðingar merkis- kvæða, eins og hinn voldugi “Skyrtu- söngur” eftir Thomas Hood, og hið víðfræga kvæði “Maðurinn með skófl- una” eftir Edwin Markham, og lýsir víðfeðm og mannúðarrík lífsskoðun Sigurðar sér vel í því þýðingavali. En hann hefir drjúgum færst í auk- ana sem skáld síðan Kvistir komu út. Fjöldi ágætra kvæða, jafnt um búning sem hugsun, hafa á síðastliðnum 40 ár- um birtst eftir hann í vestur-íslenzkum blöðum og tímaritum. Mörg þeirra eru hugsæilegs og almenns efnis, og löng- um ljóðræn vel. Tækifæriskvæði hans eru altaf lipur og fögur að hugsuh, og hitta oft ágætlega í mark, enda lætur honum flestum betur að slá á þá strengi, sem til hjartans tala. Hin mörgu kvæði hans ort til einstakra manna bera vitni drengskap hans og djúpstæðum góðhug. Á síðari áratugum hefir einnig kom- ið í blöðum og tímaritum vestan hafs sægur af þýðingum eftir Sigurð af er- lendum úrvalskvæðum, einkum ensk- um og amerískum, en hann er óvenju- lega lipur og orðhagur þýðari, og er sérstaklega sýnt um það að gera þýð- ingar sínar íslenzkar að blæ og mál- fari. Meðal meiriháttar þýðinga hans frá seinustu árum má nefna hið stór- brotna kvæði “Núverandi tímamót” eftir James Russell Lowell og hið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.