Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 106
88
TIMARIT ÞJ6ÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
boro og Cypress River bygð. Elma fékk
almenna uppfræðslu í barna og mið-
skóla í Cypress River. Þrettán ára byrj-
aði hún að læra píanóspil hjá Stein-
grími Hall og síðar hjá fleiri kennur-
um, en aðrar greinar söngfræðinnar
hjá Gwenda
Owen Davis.
Tók hún kenn-
arapróf undir
umsjón “Tor-
onto Conserv-
atory of Mus-
ic” með hárri
einkum. Brátt
kom það í ljós,
að hún hafði
fagra söng-
rödd; og hefir hún nú í mörg ár stund-
að söngnám og raddþjálfun hjá bestu
kennurum borgarinnar. Mun fyrsti
kennari hennar hafa verið hinn vel-
Jsekti söngmaður Pétur Magnús, næst
frú Sigríður Olson, Roberto Wood og
nú seinast franska söngkonan Therese
Deniset. Elma giftist árið 1932 og heit-
ir maður hennar Ragnar Gíslason. Þau
Ragnar og Elma hafa eignast 4 börn.
Elmu má nú óhætt telja eina hina
bestu söngkonu íslenska hér vestan
hafs, þeirra er nú lifa og starfa. Hún
heldur fastri stöðu í Sambandskirkj-
unni íslensku hér í borg, og syngur
auk þess iðulega á opinberum söng-
mótum. Eigi als fyrir löngu söng hún
aðal sópranó hlutverkið í hinni al-
þektu og frægu Oratóríu Handels,
Messiah, undir stjórn hins merka tón-
fræðings Bernard Naylors, og fékk
mjög vinsamleg ummæli enskra blaða.
Á síðari árum hefir Elma fengist dá-
lítið við sönglagagerð, þrátt fyrir marg-
víslegar annir dagsins. Fyrsta lag henn-
ar var við kvæði eftir Bergþór E. John-
son, sem dó hér á síðastliðnum vetri.
Lagið heitir “Dagsetur”. Annað lag er
við kvæði Páls S. Pálssonar: “Þú söngst
mér lag”. Hið þriðja er við kvæði Rich-
ards Beck: “Sál minni vaxa vængir.”
Fjórða lagið er við sálminn “1 Betle-
hem er barn oss fætt,” þar sem öll vers-
in eru tengd saman í einn hátíðasöng,
fagurt lag og frumlegt. Fimta lagið,
sem eg hefi frétt um, er við kvæði eftir
tengdaföður hennar, Hjálmar Gíslason
og byrjar svo: “Renni, renni rekkja
mín”. Flest þessi lög hefir hún sungið
sjálf á samkomum og við kirkju, og
hafa vakið talsverða athygli, enda láta
þau vel að rödd hennar og eru nokk-
uð frábrugðin því, er almennt gerist.
Þess má geta, að lög liennar hafa feng-
ið mjög lofsverð ummæli merkra söng-
fræðinga.
Híí
Auk þessara fimmtán, sem að frarn-
an eru taldir, eru óefað einhverjir, sem
mér er ekki kunnugt um, og aðrir sem
ekki hafa fengist upplýsingar frá. Svo
eru og einhverjir af yngri kynslóðinni,
sem ef til vill eru að reyna nýjar leiðir
og kæra sig síður um að vera nefndir
í samibandi við hina eldri, eða vera
merktir neinum þjóðernislegum stim-
pli. Samt er eitt mjög eftirtektar-
vert í sambandi við þessi 15. tónskáld
—og eru jafnvel þau, sem aldrei hafa
fsland séð, engin undantekning: Þau
hafa svo að segja öll valið sér íslensk
ljóð til meðferðar, eða látið jafnframt
þýða Jrau ensku.
Loks verður að geta þess, að tvö við-
urkend tónskáld dvöldu um lengri eða
skemri tíma hér vestan hafs og skrifuðu
á Jrví tímabili allmörg tónverk, en eiga
þó ekki heima í þessum hóp. Það voru
þeir Helgi Helgason og prófessor
Sveinbjörn Sveinbjörnsson.