Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 117
NOKKRIR VESTUR-ÍSLENZKIR LISTAMENN
99
getur það eitt ekki gert hann ‘meistara’
í sinni list. Sögur hinna heimsfrægu
snillinga bera vitni um það, að þeir
eiga frægð sína mest að þakka stöðugri
iðjusemi og ótrauðri starfsemi. Michael
Angelo sagði, að alt sem maðurinn gæti
hugsað sér gæti hann smíðað úr mar-
mara, ef höndin væri vanin á að hlýða
huganum.
Charles Thorson er áreiðanlega
“perfectionisti” hvað starfi sínu við-
víkur, og það er hin stöðuga æfing og
óþreytandi kostgæfni hans, sem hefir
gert hann að afburða snillingi í sinni
sérstæðu listagrein, því ‘hönd hans var
vanin á að hlýða huganum’.
1 Winnipeg er nú sem stendur að
minnsta kosti tveir aðrir íslendingar
sem hafa unnið við auglýsingateikn-
ingar. Eru það Gissur Eliasson og
Helga Miller. Þau eru bæði fædd í
Winnipeg og útskrifuð við Winnipeg
School of Arts eftir þriggja ára nám
þar (Diploma Course).
Gissur er fædclur 13. október, 1912.
Foreldrar hans eru Elias Eliasson ætt-
aður úr Vestur Skaptafellssýslu, og
kona hans Guðbjörg Sæmundsdóttir,
komin af Isafirði. Þau hjón komu frá
Islandi árið 1910. Gissur fluttist ungur
með foreldrum sínum til Árborg,
Manitoba og þar gekk hann á barna
og miðskóla. Hneigðist hugur hans
nijög að listrænum efnum og hafði
hann teiknað og málað myndir heima
tilsagnarlaust. Þá er hann var við nám
í Jóns Bjarnasonarskóla í Winnipeg
sýndi liann Charles Thorson nokkrar
af myndum sínum, og varð það til þess,
að Thorson bauðst til þess að veita
honum tilsögn í dráttlist, í vinnustofu
sinni. Eftir eins árs nám hjá Thorson
hóf Gissur nám sitt við Winnipeg
School of Art. Síðan hann útskrifaðist,
árið 1937, hefir hann verið skráhaldari
og kennari við þá stofnun. Síðast liðið
haust var listaskóli þessi sameinaður
háskólanum og verður framvegis starf-
ræktur. undir nafninu: ‘Universtiy of
Manitoba School of Art’, Gissur heldur
áfram sama starfi við þessa nýju deild
háskólans, og kennir hann stafagerð,
(Lettering) og ‘Applied Design’. Hefir
hann lagt sérstaka stund á þessa grein
dráttlistarinnar, og fengið feikna mikla
æfingu í þeirn störfum, því frá byrjun
kennararstarfsins hefir hann verið
mjög eftirsóttur af félögum og einstakl-
ingum 'til þess að búa til skrautrituð
skjöl og skírteini, einnig smá auglýs-
ingaspjöld, munstur fyrir bókakápur og
ýmislegt fleira af því tagi. Við þess kon-
ar starf þarf einstaka nákvæmni og
mikla æfingu, og er Gissur nú orðinn
snillingur við þessa vinnu. Utan skóla
starfsins hefir hann því mikið að gera,
og einnig kennir hann á skólanum tvö
kvöld í viku.
Frístundir hans eru því fáar, en samt
sem áður hefir hann málað þó nokkuð
af myndum sem eru álitnar ágætar. 1
Árborg, um það leyti sem hann var að
byrja listaferil sinn málaði hann leik-
sviðstjöld fyrir “Æfintýri á Gönguför”,
og báru þau glöggan vott um listræni
hans og smekkvísi. Hann lék og einnig
í þeim leik og öðrum leikjum áður en
hann fór alfarinn frá Árborg, og var
góður leikari.
Gissur er kvæntur Elvíru Benjamins
son, dóttur Skúla Benjamínssonar í
VVinnipeg, og konu hans Setselju (ög-
mundsonar).
Helga Miller er dóttir séra Guð-
mundar Árnasonar og konu hans Sig-
ríðar Sæmundsen. Hún er fædd 16. des.
1911, stundaði nám við Manitoba há-