Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Qupperneq 118
100
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
skólann og útskrifaðist þaðan sem
Bachelor of Art. Eftir að hafa lokið
námi við Winnipeg School of Art vann
hún við auglýsinga teikningar fyrir
ýms iðnaðar- og verzlunarfélög í Win-
nipeg, þar til er hún giftist Thomas
Miller árið 1943.
Þau hjón eiga fjóra unga syni, en
Helga gefur sér samt sem áður stund
og stund til þess að sinna málaralist-
inni. Hún tilheyrir “The Winnipeg
Sketch Club” og mætast meðlimir þess
félags vikulega til þess að mála
persónumyndir eftir fyrirmynd (model)
sem fengin er til þess að sitja fyrir. Á
Helga mikið af þesskonar myndum,
sem eru einkar fallegar, þó auðvitað
séu þær teiknaðar og málaðar í mesta
flýti á einni kveldstund.
Helga hefir málað margar fallegar
landslagsmyndir, og rnynd liennar af
Knox kirkjunni í Winnipeg, teiknuð að
haustlagi og máluð með vatnslitum,
hefir frábæra lita- og línufegurð, sem
gefur henni sérstaklega aðlaðandi blæ.
Myndir Helgu hafa verið sýndar í
Winnipeg Art Gallery og á hinum ár-
legu sýningum ‘Manitoba Society of
Artists’, og hafa einnig verið valdar
fyrir umferðasýningar sem sendar eru
til ýmsra barnaskóla í fylkinu.
Sigríður, móðir Helgu lærði einnig
málaralist, þá er liún var eitt ár á
Englandi, hjá Eiríki Magnússyni í
Cambridge og konu hans, sem var föð-
ursystir hennar. Séra Guðmundur var
þá við nám í Þýzkalandi og er hann
kom til Englands, sumarið 1909 giftust
þau og fluttu svo aftur til Winnipeg.
Sigríður kenndi mörgum unglingum
að mála bæði í Winnipeg og í Lundar
og Oak Point byggðunum þar sem séra
Guðmundur var þjónandi sem prestur.
Einnig hefir hún málað töluvert af
landslagsmyndum bæði með olíulitum
og vatnslitum og eru þær gerðar í þeim
stíl sem tíðkaðist í Englandi snemma á
þessari öld, þá er hún var við nám.
IV
Sem listamenn skipa Friðrik Swan-
son, Árni Sigurdsson og Snæbjörn Pols-
son sérstakan sess í hugum vestur- ís-
lendinga, því þeir hafa málað svo að
segja öll tjöld sem notuð hafa verið við
íslenzkar leiksýningar í Winnipeg og
nýlendunum í Manitoba, Saskatch-
ewan og Norður Dakota. Þeir höfðu
allir mikinn áhuga fyrir leiklist, og
voru góðir leikarar. Var þeim því eðli-
legt að lána leiklistinni starfskrafta
sína, listfengi og góðar gáfur.
Friðrik Swanson (Sveinsson) var
fæddur 4. nóvember 1864, að Möðru-
völlum í Hörgárdal. Foreldrar hans
voru þau Sveinn Þórarinsson, amts-
skrifari og umboðsmaður, og kona hans
Sigríður Jónsdóttir frá Vogum við Mý
vatn. Bróðir Friðriks var séra Jón
Sveinsson (‘Nonni’), kaþólskur prest-
ur, og kunnur rithöfundur.
Friðrik ólst upp hjá frænda sínum
Ólafi Ólafssyni frá Espihóli í Eyjafirði
og Ólöfu Jónsdóttur frá Lóni í Keldu-
hverfi. Með þeirn kom hann til Ame-
ríku 1873, fyrst til Milwaukie, en síð-
an til Nýja íslands (1875) og Norður
Dakota (1879), og þaðan kom hann til
Winnipeg þar sem liann dvaldi þar til
er hann andaðist 25. maí 1942. Hann
var kvæntur Sigríði, dóttur Jóns Lax-
clals frá Akureyri.
Friðrik var framúrskarandi athafna-
maður og félagslyndur mjög. Lagði
hann óspart frarn krafta sína til stuðn-
ings góðum málefnum, og við skemt-
anir var hann ‘hrókur alls fagnaðar.
Hann var lyfjafræðingur en hætti