Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 121
NOKKRIR VESTUR-ÍSLENZKIR LISTAMENN
103
félagi með honum voru margir lista-
menn og fékk Snæbjörn vinnu hjá
þeim og lærði jafnframt af þeim að
mála alls konar leiksviðstjöld. Málaði
hann þá fyrir Metropolitan leikhúsið
og Mascott ‘Vaudeville’ sýningar. Nóg
var verkefni, því þess konar sýningar
skipta um tjöld a. m. k. einu sinni í
viku.
Eftir sex ár við þennan starfa í
Portland fór Snæbjörn að færa sig suð-
ur með ströndinni, og endaði það
ferðalag eftir langa hringferð, suður,
austur, og svo norður aftur til Port-
land. Vann hann stöðugt við að mála
tjöld í mörgurn stórborgum í Calif-
orniu, Mexico, New Mexico, Arizona,
Colorado, Utah, Wyoming, Idaho,
Washington og Oregon.
Vann hann nú fyrir annan ágætan
listamann, J. Serngibell að nafni, sem
hafði með höndum auglýsinga málverk
(Commercial Art Displays). Máluðu
þeir stórar auglýsingamyndir í ýmsurn
borgum suður með strönd. í San
Francisco var Snæbjörn þegar jarð-
skjáltinn mikli og eldur eyðilagði stór-
an hluta af þeirri borg, árið 1906.
Lagði hann þá aftur í austurátt og
málaði í ýmsum borgum í miðfylkjun-
um þar til hann kom til Park River,
Norður Dakota, um 1908.
“Eg auglýsti starf mitt”, segir Snæ-
Ijjörn, “með því að hafa útisýningar á
málverkum mínum og flytja stutta fyr-
irlestra um leið. Þyrptist þá fjöldi fólks
í kring urn mig, og grunar mig að oft
muni einhver í hópnum hafa sagt, ‘Nei,
sjáið þið Eksimóann sem er að mála’,
því eg sagði ætíð til ætternis míns, tal-
aði mikið um fsland, og sýndi málverk
mín af Gullfossi, Geysi og Víkinga-
skipum.”
Er Snæbjörn var að mála tjöld fyrir
operahúsið í Park River, kornu nokkr-
ir Islendingar að heilsa upp á hann.
Voru það Eggert Erlendson, ritstjóri í
Park River, Dr. Morits Halldórsson,
séra Friðrik Bergman og séra N. S.
Thorlaksson. Höfðu þeir allir fyllst
undrun er þeir heyrðu um Islending-
inn sem var að mála tjöld við operu-
húsið. Tók Dr. Halldórsson liann heim
með sér, ‘Og þar fékk eg íslenzkt kaffi’,
segir Snæbjörn.
Nokkru seinna fór Dr. Halldórsson
með honurn um íslenzku byggðirnar í
N. D., og málaði Snæbjörn þar tjöld
fyrir mörg samkomuhús og lék einnig í
íslenzkum sjónleikjum. Að Garðar út-
vegaði Ármann Flalldórsson Snæbirni
stofu þar sem hann sýndi nokkrum
unglingum undirstöðuatriðin í málara-
list og var Emile Walters einn á meðal
þeirra.
Snæbjörn hefir málað fortjöld og
önnur leiksviðstjöld fyrir um tuttugu
samkomuhús í Nýja fslandi og íslenzku
byggðunum í Saskatchewan og Norður
Dakota. Einnig skreytti hann stofu-
veggi með málverkum (murals) bæði
í prívat húsum og matsöluhúsum í
Winnipeg og Gimli, t. d. Wevil Cafe
í Winnipeg og Falcon Cafe í Gimli. f
Mexico málaði hann mikið af þesskon-
ar myndum fyrir matsöluhús og hótel.
í Winnipeg vann Snæbjörn fyrir
‘Boris Outdoor Display Advertizing
Co. , (1919) sem var stærsta auglýsinga-
fyrirtæki í borginni. “Fred Swanson og
eg unnum oft hjá sömu félögum í Win-
nipeg”, segir Snæbjörn “til dærnis hjá
Martel Stuart og Syme Sign Co., við
vorum góðir kunningjar og gerðum
okkur oft gaman að því, að þegar
hann, sem var nýguðfræðingur og únít-
ari, var að nrála lútersku kirkjuna, Jrá
var eg, harð-lúterskur, upp á gamla