Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Qupperneq 125
NOKKRIR VESTUR-ISLENZKIR LISTAMENN
107
ir Ásta, “nú eru dæturnar giftar og son-
urinn ungi farinn í herþjónustu. Og
svo tek eg stærsta stökkið bráðum, hefi
ákveðið að fara á University of Wash-
ington listaskólann til þess að full-
komna mig í andlitslist (portraiture).
Sjálfsagt er eg að fullkomna mig fyrir
hið æðra líf, því nú er eg orðin 67 ára.
Hvað sem aldrinum viðvíkur geta
þeir átt glaða daga sem svona eru ung-
ir í anda og athafnasamir!
1 Long Beach, California, er kona af
íslenzkum ættum sem mikið og gott
starf hefir unnið í sínu umhverfi í
þágu listarinnar. Starf hennar er mest
nregnis fólgið í því að efla og styðja
listiðkun og listasmekk meðal almenn-
ings, en einnig hefir hún málað fjölda
af myndum.
Kona þessi er Ólöf Swanson. Foreldr-
ar hennar komu frá Húnavatnssýslu
til Norður Dakota sumarið 1894, og
er Ólöf fædd í Pembina héraðinu, 24.
september sama ár. Faðir hennar var
Gunnar Júlíus Guðmundsson, en móð-
ir hennar Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Anna ólafsdóttir, móðir Ingibjargar
var föðursystir séra Kristins K. Ólafs-
sonar.
Eftir nokkur ár í Dakota fluttu þau
Gunnar og Ingibjörg til Winnipeg, og
þar giftist Ólöf árið 1915 Sumarliða
Swanson (Sveinson) sem þá var nýlega
kominn frá Islandi. Til San Francisco
fluttu þau hjón, 1918, en hafa nú bú-
ið í Long Beach í rúm tuttugu ár, þar
sem Sumarliði er fasteignasali.
Frá barnæsku hafði Ólöfu langað til
að læra málaralist, en ekki var það fyr
en börn þeirra, drengur og stúlka, voru
uppkomin, að hún leitaði sér formlegr-
ar menntunar í þeirri grein. Síðan
befir hún stundað nám hjá mörgum
ágætis kennurum, og kynnt sér ýmsar
hliðar á málaralistinni. Hún hefir lagt
stund á landslagsmyndir, blómamyndir
(still life), og þó einkum myndir sem
sýna líf og hreyfingu (figures in move-
ment).
Myndir hennar hafa verið sýndar á
mörgum sýningum meðal málVerka
eftir “prófessional” listamenn, og hefir
a. m. k. ein þeirra, (The Ballet Danc-
ers) fengið viðurkenningu (honorable
mention). Myndir lrennar af því tagi
eru olíumálverk en liún notar einnig
vatnsliti og duftliti.
Ólöf Swanson er viðurkennd í Long
Beach og víðar sem kvennskörungur á
sviði almennra félagsmála, bæði á með-
al hérlendra rnanna og Vestur-lslend-
inga. Hafa þau hjón bæði lagt drjúgan
og heillaríkan skerf til íslenzkra menn-
ingarmála þar syðra. En einkum hefir
hún öðlast hylli og aðdáun samborgara
sinna fyrir starf sitt í þágu listarinnar.
Árið 1942 var hún kosin forseti lista-
mannafélagsins í Long Beach (The
Long Beach Art Association), og er það
mikið fyrir framtakssemi hennar og
dugnað að starf félagsins hefir blómg-
ast og vaxið á síðari árum. I nafni fé-
lagsins stofnaði hún listanámskeið fyr-
ir ahnenning og fékk kunna listamenn
til að kenna þar; hún setti á stofn
námssjóð til styrktar ungum og efni-
legum listanemendum; og einnig efndi
hún til árlegra sýninga á frægum lista-
verkum sem send voru víðsvegar að
í þeim tilgangi; og sjálf var hún
formaður þeirrar nefndar er sá um
allan undirbúning þessu viðvíkjandi.
Mrs. Swanson var beðin, árið 1946,
að starfa sem ráðunautur (Art Adviser)
í nefnd þeirri í Long Beach sem sá um
tilbúning á skrúðvagni þeim er borgin
sýndi í hinni árlegu skrúðgöngu,