Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 133

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Side 133
BÆKUR indi ýmisleg frá íslendingadögum og öðrum þjóðrækftissamkomum hér vestra, og eru þvi mörg hver gamlir kunningjar. Flestar sain- komuræður eru þess eðlis, að maður kærir sig ekki mjög um að heyra þær oftar en einu sinni. Um þessar ræður verður það þó ekki sagt; þær eru jafn hressilegar og skemtilegar aflestrar eins og þær voru áheyrnar. Enda er það ekkert skrum, að sem samkomuþul, stend- ur enginn dr. Beck á sporði. Auk þess sem hann skreytir ræður sínar dýrustu perlum ís- lenskra ljóða-stundum kannske fullmikið-eru þær sjálfar fullar af eldmóði og hrynjanda. Tökum til dæmis af handahófi upphaf ræð- unnar á bls. 94: - Við minnumst hins svipmikla og hrikafagra ættlands okkar á þess- um degi: Lands hinna miklu andstæðna, elds og íss; lands blárra fjalla, grænna dala og hlíða, blikandi fjallavatna, fjarða og sunda, hrynjandi fossa og hraðstreymra fljóta, lækja og linda; lands hinna bragandi norðurljósa á heiðum vetrarkveldum og á sumrum lands hinna björtu nátta, sem heilla hugann með þeirn undramætti, að engum gleymist, sem undir það áhrifavald hefir komizt . Geri aðiii betur. Auk hinna djörfu þjóðræknishugvekja, sem í þeim felst, eru erindin full af þessum hrynjandi stíl. Síðari hluti bókarinnar er aftur á móti bók- mentaritgjörðir ýmislegar; og hefir réttilega verið bent á greinarnar um skáldin og prest- ana Jón Þorláksson og Matthías Jockumsson sem eftirtektarverðastar. En hinar eru líka allar vel ritaðar og af fræðimannalegri ná- kvæmni. Mætti benda á ýmsar greinar, sem birtst hafa f þessu tímariti, þótt það sjáist hvergi—og veit eg eigi hvers prentarinn lét það gjalda, nema ef vera skyldi ritstjórans— má þar til nefna Huldu skáldkonu, Davíð Stefánsson skáld, og fleiri. En þetta eru ekki nærri því aliar bókmentaritgjörðir Becks, enda kvað önnur bók vera í vændum innan skamms. Bókin er snyrtileg útlits. Kann eg þó hálf-illa við, að greinarnar renna saman i eina bendu; ein byrjar þar sem annari lýkur, eins og kap- itulaskifti í samanhangandi skáldsögu. Á þar ekki við “- - - - eyðurnar eg þakka þér," o. s. frv. Og svo eru prentvillurnar—en höf. bók- arinnar á enga sök á þeim. Þær eru erfðasynd °kkar prentaranna og sjónsljórra prófarkales- ara. 115 20th Century Scandinavian Poetry Gcneral Editor Martin S. Allwood • Swedish Songs and Ballads Editor: Martin S. Allwood • America-Svensk Lyric Genom 100 aar 1848—1948. Martin S. Allwood, M. A. Rétt þegar tímaritið er að fara í pressuna berast mér þessar þrjár bæktir til umgetning- ar, og kann eg útgefandanum, professor Mar- tin S. Allwood í Geneva, New York, kærar þakkir fyrir. Prófessor Alhvood er fyrirlesari í Ensku og enskum fræðum, en sýnist hafa lagt sérstaka rækt við skandinaviskar bókment- ir Hann er kvæntur konu af norskum ættum og hefir hún unnið að þessu verki með hon- um ásamt öðru ágætu fólki. Fyrsta bókin, 20th Century Scandinavian Poetry, er sýnisbók, í enskum þýðingum, ljóð- skáldskapar allra fimm skandinavisku land- anna: Islands, Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Þar er jafnvel kvæði eftir Græn- lending, sem eiginlega gjörir þjóðirnar sex, eða sjö, því Finnar yrkja og tala á tveimur óskyldum tungum. f kaflanum frá fslandi eru 18 skáld, og hef- ir Magnús Á. Árnason málari og skáld í Reykj- avík, gert langflestar þýðingarnar, eða 18 als, þá er Watson Kirkconnell með 6, Jakobína Johnson, James Binder og Skúli Johnson með 2 hvert og Páll Bjarnason með 1. Langt urn stærri eru Ijóðaflokkarnir frá hinum löndun- um—mest frá Svíunum—og eru þýðingarnar á þeim yfirgnæfandi flestar eftir útgefandann, Martin S. Allwood, eða als 285. Finnsku ljóð- in eins og þau íslensku, eru þó öll þýdd af öðrum. Nafngreindir fræðimenn frá hverri þjóð skrifa innganga að kvæðunum, og er prófessor Stefán Einarsson fyrir hönd Islands. Varla er hægt að segja, að bókin sé ríg- bundin við 20. öldina, nema að því er Island snertir. Ekkert af íslensku kvæðunum gat hafa verið ort fyrir aldamót. En sama verður ekki sagt um hinar þjóðirnar. Sum skáldin, sem kvæði eru eftir, voru búnir að sjá sitt fegursta um aldamót, og eitt sá jafnvel aldrei 20. öldina rísa úr hafi tímans. Að vísu rýrir það ekki á-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.