Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Page 136
118
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
fyrst stofnað, ef alt hefði verið gert með hang-
andi hendi? Eg er sannfærðúr um að aldrei
hefði félagið náð þeim aldri, sem það nú hefir
náð, og aldrei verið við eins góðu lífi.
Þeir hafa verið margir, sem unnið hafa að
málum þess og stutt að þeim. Margir þeirra
eru nú horfnir þessu lífi og vér minnumst
þeirra í kærleika. Á hverju ári bætast aðrir
við í tölu hinna framliðnu. Vér söknum þeirra
altaf mikils. Þeir hafa unnið starf sitt vel og
hafa reynst góðir og nýtir félagsmenn.
Eg hefi nokkur nöfn manna, sem fallið hafa
frá á liinu liðnu ári, sem eg vil lesa upp til
minningar um þá, því þeir unnu vel og dyggi-
lega að félagsmálunum og verðskulda að vera
minst.
Fyrst á listanum er nafn heiðursfélaga, séra
Friðriks Hallgrímssonar, dómprófasts á Islandi.
Hann var gerður að heiðursfélaga á þinginu í
fyrra, en dó á árinu sem liðið er.
Næst eru nöfn stjórnarnefndarmanna
tveggja, sem störfuðu báðir i stjórnarnefndinni
um nokkurra ára skeið, Sveinn Thorvaldson,
M.B.E., fyrv. varaforseti aðalfélagsins og fyrv.
forseti deildarinnar “Isafold” í Riverton, og
séra Halldór Johnson, fyrv. ritari félagsins og
fyrv. meðlimur deildarinnar á Lundar. Hann
fórst, eins og menn vita, í sjóslysi við Vest-
mannaeyjar 8. janúar s.l. ásamt níu mönnum
öðrum. Minningarathöfn var honum haldin
í gær x Fyrstu Sambandskirkju hér í bæ.
Aðrir meðlimir Þjóðræknisfélagsins, sem dá-
ið hafa á árinu eru: Gísli Sigmundsson, Gimli;
Sigurður Sigfússon, Oak View; A. E. (Eldjárn)
Johnson, Glenboro; Mrs. María Straumfjörð,
Seattle; Guðjón Johnson, Winnipeg; Mis.
Kristín Erlendson, Winnipeg; Karl Jónasson,
VV'innipeg; Eiríkur Thorbergson, Winnipeg;
Mrs. Ovída Sveinsson, Winnipeg; Eyjólfur
Sveinsson, Winnipeg; Mrs. Guðrún Sólmund-
son, Winnipeg. Og svo vil eg bæta hér inn í
listann nafni, sem af einhverri ófyrirgefan-
legri vangá, var ekki talið upp á listanum í
fyrra, sem hefði þó átt að vera. Það er nafn
skálds, sem víðþekt var bæði á fyrri og seinni
tíð, hér og heima á fslandi, Jxað er nafn Magn-
úsar Markússonar ömmubróður rníns, sem dó
20. október 1948. Eg vil nú bæta yfirsjónina
upp og færa nafn hans inn á lista þessa árs.
Félagið hefir haft margt með höndurn á
hinu liðna ;íri, síðan að við komum síðast
saman, og þar á meðal þýðingarmikla starf-
semi af ýmsu tagi og á ýmsum sviðum, sem
margsannar gildi félagsins og réttlætir tilveru
þess, bæði sem þjóðræknisfélags, þar sem menn
og konur af íslenzku bergi brotin, ná saman
og vinna í sameiningu að málum sem alla
varða. Meðal þeirra mála var t. d. þátttaka ís-
lendinga í 75 ára afmælishátíð Winnipegborg-
ar. Fyrstu fundir í því máli, sem Þjóðræknis-
félagið stóð fyrir, og sem fulltrúar annara fé-
laga fslendinga í Winnipeg tóku þátt í, voru
kallaðir saman i apríl-mánuði. Mörg voru ráð-
in, sem lögð voru fram, og margir voru þeir,
sem tóku þátt i verkinu, sem þessi hátíðanefnd
tók að sér að vinna. Eg varð að hverfa frá
beinni þátttöku í þessari starfsemi snemma í
maí, en verkið var í ágætum höndum og eins
og raun ber vitni þurfti eg engar áhyggjur að
hafa út af því að þurfa að ganga úr nefndinni.
Skrifari félagsins tók formensku nefndarinnar
og stóð vel í þeirri stöðu. Peningasöfnun var
hafin og gengið var til verks að smíða stóran
og veglegan skrautvagn, eða “Float”, sem átti
að tákna þátttöku fslendinga í byggingu Win-
nipeg-borgar. Gissur Elíasson sá um verkið og
leysti hann það vel af hendi. Svo vel tókst hon-
um, með hjálp og aðstoð nefndarmanna, að
vagn íslendinga var talinn meðal hinna fyrstu
tuttugu og fimm beztu skrautvagna, sem í
skrúðgöngunni voru, sem námu alls eitthvað
á annað hundrað. íslendingadagsnefndin, senx
með hafði verið x þessari þátttöku og lagt x
hátíðarsjóðinn nokkra upphæð af peningum,
notaði vagninn í sambandi við fslendinga-
dagshátíðina á Gimli s.l. sumar.
Hve vel fslendingum tókst í þessu máli ætti
að vera góðs vitni um hátíðahaldið, sem hald-
ið verður væntanlega seinna í sumar til minn-
ingar um 75 ára hátíð landnáms íslendinga i
þessu fylki. íslendingar settust fyist að í Win-
nipeg um haustið 1875 og fóru svo héðan sama
haust norður til Nýja-fslands og settust þar að.
Nefndir hafa verið settar í þetta mál, bæði
[rjóðræknisnefnd, nefnd íslendingadagsins og
nefnd Nýja-íslands. Þessum nefndum hcfir
ekki enn tekist að ná saman að fullu leyti, en
það' verður að veia meðal liinna fyrstu hlut-
veika innan næstu daga eftir að þingið er bu-
ið, að halda fund og ráðstafa viðeigandi hátíð.
Það getur verið, og væri viðeigandi, að menu
tækju þetta mál fyiir hér á þinginu. Hér eru
fulltrúar frá deildum norðan að og hér ertt
líka fulltrúar deildarinnar í Winnipeg. Það