Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 144
126
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
Samkoman fór að öllu leyti vel fram undir
stjórn séra E. H. Fafnis. Skemtiskráin var ágæt.
Aðal ræðufólk var, Dr. R. Beck og frú Hólm-
fríður Danielsson og sagðist báðum ágætlega,
og svo var almennur söngur. Tvísöng sungu
þær frúnnar G. S. Goodman, og W. K. Hall-
dórson, en Emily Sigmundson einsöng. Margt
fleira var á skemtiskránni og var góður róm-
ur gerður að því öllu.
Þá fékk deildin frú Hólmfríði H. Danielson
til að kenna unglingum og börnum söng og
tslenzku. Kom hún til okkar 7. júní og var
ti! 17. júlí. Kenndi hún á þremur stöðum hér
í bygðinni, tvo daga í hverjum stað. Á Garðar,
á Mountain, og á Hallson. Á öllum stöðun-
um sóttu 63 börn kensluna, sem fór ágætlega
vel fram og á frú Danielson þökk og heiður
skilið fyrir frammistöðu sína.
Hún liélt tvær samkomur með börnunum,
áður en að hún fór til baka, aðra á Garðar,
11. júlí, hina á Mountain 17. sama mánaðar,
voru þær báðar ágætlega sóttar og þóttu mjög
góðar. Voru þær samkomur bæði börnunum
og frú Danielson til stór sóma.
Á síðasta ársfundi Bárunnar var ákveðið að
fá frú Hólmfríði til að koma aftur suður til
N. Dakota og halda barnakenslunni þar áfram.
Báran beitti sér fyrir að stofnaður var sjóð-
ur til minningar um Jóhannes læknir og
Björgu konu hans, og lagði $250.00 í þann
sjóð. Alls komu inn í sjóðinn $1,332.50, og
þakkar framkvæmdarnefnd Bárunnar öllurn
sem þátt tóku og gjörðu það svo myndarlega.
Kærar þakkir.
Félagar í Bárunni teljast nú 88. Félagar dán-
ir á árinu, Mrs. S. J. Hallgrimson, Mountain,
Marða Mýrdal, Garðar, Mrs. María Ólafson,
Mountain.
Allt starfið í Báru hefir gengið vel á árinu.
Virðist Báran vel lifandi.
Við hér Bárufólk sendum ykkur kærar
kveðjur okkar og vonumst eftir að allt starfið
gangi vel á þinginu og óskum öllum Islend-
ingum nær og fjær allrar blessunar. Líði ykk-
ur ölluin ætíð sem bezt.
G. J. Jónasson, H. B. Grímsson
forseti. skrifari.
Skýrsla deildarinnar “öldunnar”
fyrir árið 1949.
Árið 1949 hefir deildin “Aldan”, í Blaine.
Wash. starfað á líkan hátt og undanfarin ár.
Fjórir aðalfundir hafa verið haldnir, og tveir
stjórnarnefndar fundir.
Frelsisdags íslands var minst með almennri
skemtisamkomu, sem haldin var að þessu
sinni 18. júní. Aðsókn var góð og skemtiskráin
velrómuð. Elliheimilið “Stafholt” sem Aldan
hefir lagt kapp á að styðja, var eins og kunn-
ugt er, opnað til afnota í janúar mánuði með
fjölsóttu hátíðahaldi. Er það nú fullskipað og
öll starfræksla gengur ákjósanlega.
Aldan á ábak að sjá tveimur meðlimum sem
dáið hafa á árinu, eru það Jónas Sveinsson og
Guðrún Símonarson, móðir Einars Simonar-
sonar lögfræðings og forseta Elliheimilisins.
Aftur á móti hafa deildinni bæzt fjórir nýir
félagar og telur hún nú 50 meðlimi.
A. E. Kristjánsson, Dagbjört Vopnfjörð,
forseti. ritari.
Skýrsla deildarinnar “Lundar”
fyrir árið 1949.
Meðlimatala fyrir árið 1949 var 41.
Fundir ákveðnir þriðja hvern mánuð.
Ekki var mögulegt að starfrækja kenslu í
íslenzku sökum húsnæðisskorts og vöntun
kennara, frekar en áhugaleysi unglinga. En
svo vonum við, að úr því rakni með nýja skól-
anum, og að kennara kraftar fáist á árinu.
Á fundinum sem haldinn var í október var
gerð fyrirspurn um hvort ekki væri gerlegt
að fá íslenzkar hreifimyndir sýndar á Lundar,
og var ritara deildarinnar, Mrs. L. Sveinsson
falið að leita sér upplýsingar í því sambandi,
en hún var ekki búin að fá svar, þegar að hún
lagði upp í ferð um áramótin. Á ársfundi
deildarinnar ,sem haldin var í húsi Mr. og
Mrs. Kári Byron var stjórnarnefnd deildarinn-
ar endurkosin. I henni eru: Ágúst S. Eyjólfsson,
forseti; Mrs. L. Sveinsson, ritari; Mrs. S. Hof-
teig, Torfi Torfason, Mrs. H. Björnsson og
Mrs. K. Pálsson.
Einnig voru erindrekar á þjóðræknisþingið
kosnir og eru þeir Mrs. V. Rafnkellsson og
séra Jóhann Friðriksson. Séra Jóhann og kona
hans gengu í deildina á fundinum. Vara er-
indreki Ágúst S. Eyjólfsson.
Kristín Pálsson
Skýrslur þessar, sem að ritari Þjóðræknis-
félagsins las upp, voru allar viðteknar.