Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Síða 145
ÞINGTIÐINDI
127
Skýrsla deildarinnar “Gimli” 1949
Gimli deildin hefir aldrei verið eins vel
starfandi síðan að hún var stofnsett. Aðsókn
að fundum alltaf að aukast.
Fjórir starfs- og skemtifundir hafa verið
haldnir á árinu. Kensla í íslenzku er starf-
rækt eins og að undanförnu. Kenslukonur við
skólann eru sem hér segir: Mrs. Sylvía Kárdal,
Mrs. Ingibjörg Bjarnason, Mrs. Kristín I>or-
sleinsson, Mrs. Lilja Kárdal og Mrs. Elín Ein-
arsson. Frá 30—40 nemendur sækja skólann
stöðugt einusinni í viku.
Samkoma var haldin í vor, þar sem allir
íslenzku nemendurnir komu framá sjónarsvið-
ið, með söng framsögn og upplestur, en aðal
atriðið á skemtiskránni var leikurinn “Hlini
Konungsson". Var þetta ágæt samkoma og vel
sótt.
Eintim af okkar starfsfélögum voru veittir
$50.00 úr sjóði deildarinnar. Það var söngvar-
inn ólafur N. Kárdal, sem nú er við söng-
nám í Minneapolis í Bandaríkjunum. Sá mað-
ur á það sannarlega skilið að við sýnum hon-
um virðingar og þakklætis vott, því svo oft
hefir hann skemt okkur með hinni fögru rödd
sinni. Einnig gaf deildin $50.00 til skauta-
skála bæjarins og þar höfum við oftast fundi
okkar.
Embættismenn deildarinnar fyrir komandi
ár eru þessir: Forseti, Guðmundur Féldsted,
vara-forseti, Sigurður Baldvinsson; skrifari
Ingólfur N. Bjarnason; gjaldkeri, Elías Ólafs-
son.
Kærar kveðjur til þingsins.
G. Féldsted Ing. Bjarnason
forseti ritari
Skýrsla þjóðræknisdeildarinnar “Esjan”
í Árborg, Manitoba fyrir árið 1949
Tveir fundir voru haldnir á árinu, var ann-
ar þeirra ársfundur. Báðir þessir fundir voru
allvel sóttir og bráð skenrtilegir. Eina sam-
konui hélt deildin á árinu og heppnaðist hún
nræta vel. Til skemtana var framsögn á ís-
lenzku. 1 henni tóku þátt um 20 unglingar á
aldrinum frá 8—15 ára, engin dauðamerki
voru á framburði þessara unglinga, enda var
það dómur flestra samkomugestanna að sjald-
an hefðu þeir heyrt unglinga lesa betur, en í
þetta sinn. Sex ungar stúlkur sungu nokkur
íslenzk lög undir stjórn Mrs. Florence Bradley,
og var það ágæt skemtun. Síðast en ekki síst
hélt Mr. Gillson, forseti Manitoba háskólans
ræðu, þrungna af mannviti og góðvild. Gesti
líka honum væri gaman að hafa, þó ekki
væri nema einusinni á ári hverju. Deildin tel-
ur 99 meðlimi.
Tekjur hennar árinu 1949 námu:
Tekjur
Meðlimagjöld ____________________ $99.00
Arður af Samk_________________ $133.25
1 sjóði _________________________ $66.80
Samtals __________________ $299.80
Útgjöld
Til Þjóðræknisfélagsins ___________ $39.00....
Bækur keyptar fyrir _______________ $105.65....
Kaup Bókv. __________________________ $25.00
Frímerki _______________________________ .60
Samtals ______________________ $173.62
I banka við áramót, 1949 og 1950 ....$125.68
Bókasafn Esjunnar qr að smá aukast, um
og yfir $100.00 á ári er varið til bókakaupa.
Deildin mun nú eiga um 1000 bækur, lang
mesti hlutinn í góðu ásigkomulagi. Lesnar eru
í kringum 600 bækur árlega af félagsmönnum.
Vinsamlegast
T. Böðvarsson
Skýrsla deildarinnar “Island”,
Morden, Manitoba, fyrir árið 1949
Deildin, þó fámenn sé, er með góðu lífi.
Fjórir almennir fundir voru haldnir á ár-
inu og voru þeir allir vel sóttir. Ein kona féll
frá á árinu, Miss Oddný Gíslason.
Þar sem að fimtíu ár voru á þessu ári liðin
frá því að Islendingar fyrst settust hér að, á-
kvað deildin að standa fyrir fimtíu ára land-
náms minningarhátíð og fór sú hátíð fram
föstudaginn, 15. júlí 1949, í indælu veðri.
Margt fólk var aðkomandi, einkum frá Dakóta,
Winnipeg, Lundar og víðar, að. Forseti dagsins
var Jón B. Johnson, en ræður fluttu séra
Philip M. Pétursson forseti Þjóðræknisfélags-
ins, sem flutti kveðjur frá félaginu. Séra Eg-
ill H. Fafnis forseti kirkjufélagsins, flutti
kveðjur frá þeim félagsskap, Guðmundur J.