Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Blaðsíða 151
ÞINGTIÐINDI
133
Deildin telur nú ura 160 skuldlausa með-
limi og má þar bæta við, öðrum tuttugu, eða
þrjátíu, sem að fjármálaritari hefir enn ekki
náð til.
Síðasta Frónsmótið, var haldið á Marlbor-
ough Hótel. Það var vönduð samkoma og all-
vel sótt, þó fanst það á, að sumum þótti ekki
vel við eigandi að fara austur fyrir Sherbrook
str. og verður nú bætt úr því í ár og mótið
haldið vestur á Downing St. Tvær aðrar sam-
komur hafði Frón á árinu og stjórnarnefndar-
fundir voru tíu.
Stjórnarnefndin hefir verið næstum því ó-
breytt síðast liðin þrjú ár og var hún endur-
kosin á síðasta ársfundi, nema hvað einn af
embættismönnunum baðst lausnar. Að jafnaði
hefir einn maður gengið úr nefndinni á ári á
umræddu tímabili.
Nefndin er nú skipuð þessum mönnum:
Forseti — Próf. Tryggvi J. Oleson
Skrifari — Heimir Thorgrímsson
Vara-skrifari — Ðavíð Björnsson
Féhirðir — Jochum Ásgeirsson
Vara-féhirðir — Pétur Pétursson
Fjármálaritari — Jón Jónsson
Vara fjármálaritari — örn Þorsteinsson
Deildin hefir enn umsjón með bókasafni
Þjóðræknisfélagsins. Safnið er opið á miðviku-
dögum, bæði að morgni og kveldi. Bókavörður
er nú Jón Jónsson. Hann tók við safninu í
haust af Davíð Björnssyni sem til margra ára
hafði lagt hina mestu rækt við það. Safnið er
nú vinsælt af eldra fólki sérstaklega og eru
um fimtíu bækur lánaðar út á viku. Kostnað-
ur við safnið varð $280.50 á þessu ári og gekk
langmestur hluti þess fjárs til að kaupa nýj-
ar bækur.
Þeim til fróðleiks sem vilja fylgjast betur
með starfi deildarinnar læt eg hér fylgja
skýrslu féhirðirs deildarinnar, dagsetta 30.
nóv. s. 1.
Inntektir
6. des. Peningar í sjóði ______________$96.80
30. nóv. Meðlimagjöld ________________ $128.00
Inntektir á Frónsmóti ________________ $370.50
Samskot á fundum ______________________$20.15
Frá Þjóðr.fé. til bókakaupa------------$100.00
Samtals_____$715.45
Útgjöld
Kostnaður við Frónsmótið____________$232.90
Kostnaður við fundarhöld____________ $20.00
Til Þjóðræknisfé. meðlimagjöld _____ $79.00
Nýjar bækur og bókband ____________ $280.50
Innheimtulaun, frímerki o.s.frv. ___ $13.00
Samtals__________$625.50
I sjóði__________$89.95
Total____________$715.45
Hér skal dregið athygli að því, að Þjóð-
ra:knisfélagið veitti deildinni $100.00 í ís-
lenzkum krónum til bókakaupa árið sem leið.
Sömu upphæð hefir það aftur veitt okkur á
þessu ári. Fyrir þetta viljum við Frónsmenn
þakka.
Annað þarf ekki að athuga við skýrslu fé-
hirðirs, nema þá kanske að benda á það, hve
kostnaðurinn við miðsvetrarmótið er orðinn
gífurlegur, en nú er ekki lengur hægt að borga
bara með “thank you” eins og karlinn sagði.
H. Thorgrímsson
Ritari Fróns
20. febrúar 1950
Miss Elín Hall lagði til og Guðbjörg Sig-
urðsson studdi að skýrslunni sé veitt móttaka.
Samþykt.
Einar Sigurðsson flutti munnlega skýrslu
frá deildinni Snæfell í Churchbridge, Sask.,
er þannig hljóðaði: Eg stend nokkuð öðruvísi
og ver að vígi, en fulltrúar frá öðrum deild-
um, að því leyti, þó að eg væri meðlimur deild-
arinnar “Snæfell” um langt skeið, og sé það
raunar enn, þá hefi eg þó ekki verið búsettur
innan vébanda deildarinnar né verið þátttak-
andi í starfi hennar síðustu tvö, þrjú árin.
Þegar að eg kom heim af þingfundi um há-
degi í dag var þar fyrir bréf frá skrifara deild-
arinnar sr. Sigurði Kristópherssyni og fylgdi
því umboð til mín um að mæta sem fulltrúi
deildarinnar hér á þinginu. En, því miður
fylgdi því engin skýrsla um starfsemi félags-
ins á árinu liðna. Hinsvegar sendir hann mér
afrit af fundargjörð aðal fundar deildarinnar
scm haldinn hefir verið 30. jan. s.l. og þó sá
fundur fjallaði auðvitað fyrst og fremst um
einkamál deildarinnar, má þó nokkuð af
fundargjörðinni ráða hvernig högum hennar
er háttað.