Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Qupperneq 153
ÞINGTIÐINDI
135
Samþykt var að álitið lið fyrir lið. Allir lið-
irnir samþyktir umræðulaust og svo nefndar-
álitið í heild samkvæmt uppástungu G. L.
Jóhannssonar sem var studd af Sigurði Bald-
vinssyni. Samþykt.
Fundarhlé var ákveðið í fimm mínútur til
þess að gefa fréttariturum frá blaðinu Tribune
tíma til að taka myndir af stjórnarnefnd
Þjóðræknisféiagsins, að því loknu var fundur
settur á ný.
Forseti bað ritara að lesa upp nöfn þeirra
sem að í nefndir hefðu verið settir.
Forseti skýrði frá, að herra Gunnar Pálsson
frá New York væri kominn til þingsins og
bauð hann velkominn. Ávarpaði gesturinn
þingið vel og sköruglega, þakkaði fyrir sæmd
þá sem sér hefði verið sýnd og árnaði Jringinu
allra heilla.
G. J. Oleson vakti máls á að fallegt og æski-
legt væri ef að Þjóðræknisfélagið sæi sér fært
að leggja $100.00 í U.N.C.F'. — United Nation-
al Childrens Emergency Fund. Var því máli
vísað til fjánnálanfendar. Böðvar Jakobsson
vakti máls á hve ójiarft og óhæfilegt það væri
fyrir fólk að vera alltaf að tala um að íslenzk-
an hér hjá okkur í Vesturheimi væri að deyja.
Taldi hann það tal ekki að eins hættulegt
fyrir viðhald íslenzks máls og menningar,
heldur blátt áfram rökleysu eina.
Þingnefndarálit í útbreiðslumálum
Framsögumaður Gunnar Sæmundsson. Séra
Egill Fafnis lagði til og Dr. Beck studdi að
nefndarálitið, sem var í fimm liðum sé tekið
fyrir lið fyrir lið. Samþykt.
1. Þingið þakkar forseta og starfsnefnd
þjóðræknisfélagsins starf þeirra á síðastliðnu
ári.
2. Þingið hvetur stjórnarnefndina til að
gangast fyrir á eins öflugan hátt og unt er,
að veita deildum félagsins tækifæri til að
njóta aðstoðar eins góðs söngstjóra og völ er
á.
3. Þingið hvetur stjórnarnefndina til að at-
huga ítarlega mögulcika á að fá kvikmyndir
l'já kvikmyndafélagi Islands til afnotkunar
Þjóðræknisfélaginu og deildum þess.
4. Nefndin leggur sérstaka áherzlu á, söng-
kenslu, finnst að ekkert hvetji ungdóminn bet-
ur til að læra íslenzka tungu en söngvar og
Ijóð. Nefndin þakkar viðleitni þá, er gerð var
með ágætum árangri á síðastliðnu ári, eftir
því sem skýrt var frá hér á þinginu.
5. Þingið hvetur væntanlega stjórnarnefnd
til að fá góða menn, að heimsækja deildir til
fræðslu og skemtana.
Gunnar Sæmundsson
Þorsteinn J. Gíslason
Jóhann Fredriksson
Elín S. Hall
H. ólafsson
Séra Egill Fáfnis lagði til, og Dr. Beck
studdi að nefndar álitið sé rætt lið fyrir lið.
Samþykt.
Allir liðirnir voru samþyktir umræðulaust
og svo nefndarálitið í heild samkvæmt tillögu
stra Egils og Dr. Beck.
Formaður kjörbréfanefndar tilkynti, að til
[rings væri komin frú Veiga Jóhannesson frá
deildinni “Esjan” með 16 atkvæði, og lagði til
að henni væri veitt full jringréttindi. Dr.
Beck studdi tillöguna og var hún samþykt.
Svo var fundi frestað til kl. 1.30 e.h..
Fundur settur kl. 1.30 e. h. Fundargjörning-
ur frá síðasta fundi lesinn og staðfestur.
Fræðslumál
Frú Ingibjörg Jónsson las álit nefndarinnar í
fræðslumálum, sem var í sex liðum. Þorsteinn
Gíslason lagði til Einar Magnússon studdi, að
nefndarálitið sé rætt lið fyrir lið. Samþykt.
1. Þingið fclur stjórnarnefnd Þjóðræknisfé-
lagsins að stuðla að því á allan hátt, að sem
flestar deildir félagsins starfræki íslenzku skóla
á komandi ári.
2. Þingið telur æskilegt að stjórnarnefndin,
í samráði við deildirnar, stofni til kennara
fundar í Winnipeg í byrjun næsta skólaárs,
þar sem kennarar geta rætt um vandamál sín,
kensluaðferðir og fleira og að félagið borgi
ferðakostnað eins kennara frá hverri deild.
3. Þingið felur stjórnarnefndinni að panta
sýnishorn af linguaphone kenslu-plötum í ís-
lenzku strax og þær eru tilbúnar, og ef hún í
samráði við kennarana álítur þær ákjósanlegar
fyrir íslenzku skólana, að útvega þá áminstar
plötur til afnota í öllum skólunum.